131. löggjafarþing — 56. fundur,  10. des. 2004.

Innrásin í Írak og forsendur fyrir stuðningi íslenskra stjórnvalda.

3. mál
[19:18]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekkert að stilla hv. þingmanni upp við vegg. Hann er að krefjast afstöðu minnar í þessu máli og ekki bara núna. Ætli þetta sé ekki í fimmtugasta skipti sem talað er um þessi mál á Alþingi eða eitthvað svoleiðis? Það eru a.m.k. margir tugir funda þar sem þetta mál hefur borið á góma.

En nú kemur hann hér eins og svo oft áður og segir að tillagan sé meingölluð. Hér er náttúrlega um málamiðlun að ræða milli margra þjóða. Það er þannig sem Sameinuðu þjóðirnar starfa. Hann getur ekki komið hér og sagt að hann styðji þessa tillögu. Þá hlýtur hann að vera á móti henni. Þetta er nú ekkert flóknara en það. Er það eitthvað skrýtið að við skulum stundum vilja fá að vita hvað þessi flokkur hans vill miðað við alla gagnrýnina sem kemur hér upp á Alþingi dag eftir dag? Það er ekkert undarlegt, hv. þingmaður, að við viljum einstaka sinnum vita hvað þar býr að baki hjá ykkur.