131. löggjafarþing — 56. fundur,  10. des. 2004.

Innrásin í Írak og forsendur fyrir stuðningi íslenskra stjórnvalda.

3. mál
[19:22]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég vildi aðeins fá að vita hvað þessi setning þýðir, með leyfi hæstv. forseta:

„Bandaríski herinn er að mæta þeirri andspyrnu sem hann á skilið í Írak.“

Þetta lið sem er núna í Írak er þar í umboði bráðabirgðastjórnarinnar og er í umboði Sameinuðu þjóðanna. Hvað meina menn með svona orðalagi? (ÖJ: Er þetta bandarískur herforingi eða forsætisráðherra Íslands?) Hvað meina menn með þessum orðum? (ÖJ: Er þetta bandarískur herforingi?)

Auðvitað geri ég mér afskaplega vel grein fyrir því að það hafa hræðilegir hlutir gerst í Írak og þar hefur margt saklaust fólk látið lífið. Það gerðust líka hræðilegir hlutir í Írak á tímum Saddams Husseins, pyntingar, morð og nauðganir með skipulegum hætti. (Gripið fram í: Er það ekki svipað og núna?) Það er meira en orð fá lýst hvers konar hörmungar hafa gengið yfir þessa þjóð, Íraka. En nú stendur hún í baráttu fyrir sjálfstæði sínu, fyrir framtíð sinni og okkur ber skylda til að aðstoða við það.

Það vill svo til að þar er fjölþjóðlegt herlið sem hefur umboð Sameinuðu þjóðanna. Mér finnst það ekki vera sæmandi að nota slík orð að bandaríski herinn mæti þeirri andspyrnu sem hann eigi skilið í Írak og lái mér hver sem vill.