131. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[15:04]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 3. þm. Norðvest., Magnúsi Stefánssyni, dagsett 21. janúar:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum á vegum Alþingis og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, Herdís Á. Sæmundardóttir framhaldsskólakennari, Sauðárkróki, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

 

Jafnframt hefur borist svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar, Kristjáni L. Möller, dagsett 24. janúar:

„Þar sem Margrét Frímannsdóttir, 1. þm. Suðurk., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 3. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður Jökuls – stéttarfélags á Höfn í Hornafirði, tæki sæti hennar á Alþingi á meðan en bæði 1. og 2. varamaður á listanum, þau Brynja Magnúsdóttir og Önundur Björnsson, eru forfölluð að þessu sinni.“

 

Þá hafa borist bréf frá 1. varaþingmanni Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Brynju Magnúsdóttur, og frá 2. varaþingmanni Samfylkingarinnar í sama kjördæmi, Önundi S. Björnssyni, þar sem þau tilkynna um forföll sín.

Kjörbréf Herdísar Á. Sæmundardóttur og Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur hafa þegar verið rannsökuð og samþykkt en þær hafa ekki áður setið á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Herdís Á. Sæmundardóttir, 3. þm. Norðvest., og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, 1. þm. Suðurk., undirrituðu drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]