131. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2005.

Trúnaðarupplýsingar um stríðið í Írak.

[15:08]

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé ekki í allra þágu og ekki síst hans að allri leynd verði aflétt af ummælum hans í utanríkismálanefnd og í ríkisstjórn sem tengjast stuðningi hans og reyndar líka formanns Sjálfstæðisflokksins við innrásina í Írak. Ástæðan er sú að hæstv. forsætisráðherra er í þeirri óþægilegu stöðu að það hefur virst að hann hafi ekki einu sinni heldur tvisvar orðið tvísaga um lykilþætti málsins. Í fyrra skiptið virtist hæstv. forsætisráðherra vera tvísaga þegar hann sagði í Kastljóssþætti í desember að innrásin hefði ekki verið rædd í ríkisstjórn. Í umræðu utan dagskrár við mig vikuna á eftir sagði hann hins vegar úr þessum ræðustóli að innrásin hefði verið á dagskrá ríkisstjórnar 18. mars og hann gaf til kynna að þar hefði verið að finna tildrög ákvörðunarinnar.

Í annað skipti sem hæstv. forsætisráðherra virtist tvísaga var þegar hann lýsti því yfir að ákvörðun um innrás hefði verið rædd í utanríkismálanefnd. Við það kannast enginn maður og ekki einu sinni fulltrúi Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd sem hefur borið að ákvörðunin hafi ekki verið rædd í nefndinni.

Herra forseti. Þetta er ákaflega óþægilegt. Það er óboðlegt að forsætisráðherra tali þannig um jafngrafalvarleg málefni og stuðning við innrás í annað ríki að þjóðin viti ekki hið sanna í málinu. Var ákvörðun rædd í ríkisstjórn eða ekki? Var ákvörðun rædd í utanríkismálanefnd eða ekki? Það er auðvelt að ganga úr skugga um það með því að forsætisráðherra birti þær upplýsingar sem málinu tengjast varðandi ríkisstjórnarfundinn 18. mars, einkum ummæli hans sjálfs og sömuleiðis að hann sjálfur aflétti leynd af því sem hann sagði á fundi utanríkismálanefndar 19. febrúar en þá var síðasti fundurinn sem hann mætti á sjálfur til að ræða þetta mál. Er hæstv. forsætisráðherra reiðubúinn til að gera þetta?