131. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2005.

Fsp. 4.

[15:34]

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. félagsmálaráðherra hvort hann sé reiðubúinn til að beita sér fyrir því að hætt verði að miða lánveitingar Íbúðalánasjóðs við brunabótamat en þess í stað verði lánveitingar miðaðar við kaupverð eigna því að brunabótamat er orðið ónothæfur grundvöllur fyrir veðhæfni fasteigna. Gífurlegar verðhækkanir á fasteignum undanfarna mánuði og missiri, auk þeirra breytinga sem gerðar voru á útreikningi brunabótamats fyrir um þremur árum, lækkuðu verulega brunabótamat hjá fjölda fasteignaeigenda og hafa leitt til verulegs misræmis milli brunabótamats og fasteignaverðs. Útilokað er að búa við það áfram að brunabótamat ákvarði veðhæfni fasteigna og þar með lánamöguleika einstaklinga.

Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins voru 70% kaupsamninga sem gerðir voru í desember sl. vegna lítilla og meðalstórra íbúða þar sem kaupverðið var 20% hærra en brunabótamatið. Algengast var eða í helmingi allra kaupsamninga sem gerðir voru í desember að kaupverðið væri 20–40% hærra en brunabótamatið og dæmi voru um kaupsamninga þar sem kaupverðið var 70–100% hærra en brunabótamatið sem leiddi til verulegrar skerðingar á lánveitingum til einstaklinga. Veðhæfnisskilyrði bankastofnana eru miklu rýmri en hjá Íbúðalánasjóði og miða bankarnir yfirleitt veðhæfni við markaðsverð eigna. Hefur það orðið til þess að einstaklingar hrökklast frá Íbúðalánasjóði til banka með fasteignaviðskipti sín. Það hefur komið sér mjög illa fyrir fólk sem fékk viðbótarlán áður en þau voru lögð af í desember sl. vegna þess að viðbótarlánin voru miðuð við kaupverð fasteigna en ekki brunabótamat. Þetta kemur sér því mjög illa fyrir fólk sem er að kaupa litlar eða meðalstórar íbúðir.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann telji ekki sanngjarnt og eðlilegt að breyta veðhæfnisskilyrðum við lánveitingar hjá Íbúðalánasjóði og miða við kaupverð eða matsverð fasteigna en ekki brunabótamat sem endurspeglar allt annað en lánshæfismat fasteigna.