Starfsskýrsla Ríkisendurskoðunar 2003.
Halldór Blöndal (S) (andsvar):
Herra forseti. Það er ágætt að þingmaðurinn skuli átta sig á því að hann hafi setið skemur á þingi en ég og dragi af því réttar ályktanir. Sýnir nú mikla glöggskyggni.
Það er annað sem þetta segir. Skýrslan lá fyrir síðasta vor. Ég sagði alls ekki að það væri markmið hjá mér að taka skýrsluna til umræðu seinna en ætlað hafði verið samkvæmt starfsáætlun. Ég skýrði áðan hvernig á því stóð og má vel snúa út úr því ef hv. þingmaður vill. Ég tók jafnframt fram að það hefði verið venja að ræða þessar skýrslur samtímis, frá ríkisendurskoðanda og umboðsmanni Alþingis. Það má auðvitað hugsa sér að hafa annan hátt á því, taka skýrslu ríkisendurskoðanda að vorinu og umboðsmanns að haustinu. Aðalatriðið er að skýrsla Ríkisendurskoðunar lá fyrir. Þeir sem áttu sæti í fjárlaganefnd höfðu hana undir höndum. Þeir gátu lesið það sem þar stóð og gert sér grein fyrir því.
Það er þess vegna síður en svo að það að skýrslan var ekki rædd fyrr en í dag komi í veg fyrir að þingmenn hafi getað nýtt sér þær upplýsingar sem þar voru, og sem þar eru. Hitt getur hv. þingmaður sagt með réttu að vegna þess að ég fór til annarra landa gat ég ekki samtímis talað fyrir málinu. Ég hélt satt að segja að það hefði ekki komið að sök þótt það hefði dregist í tvo mánuði.