131. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2005.

Upplýsingar um Íraksstríðið.

[13:47]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegur forseti. Ég held að engum heilbrigðum manni geti dottið í hug að mæla gegn því að það hafi verið meiri háttar ákvörðun þegar íslensk stjórnvöld lýstu yfir stuðningi við innrás í Írak. Í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar, í fyrsta sinn í sögu íslenskrar þjóðar, tókum við þátt í því að ráðast með vopnavaldi á fullvalda þjóð. Þetta er meiri háttar mál.

Það er ekki rétt sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson sagði hér áðan, að ekkert nýtt hefði komið fram í þessu máli síðan á dögunum örlagaríku í febrúar og mars árið 2003. Það hefur heilmikið nýtt komið fram. Meðal annars hafa varnaðarorð okkar sem reyndum að koma vitinu fyrir stjórnvöld hér á Íslandi öll komið fram, það hefur sýnt sig að þau voru öll rétt. Tugþúsundir liggja í valnum. Það er búið að rústa þetta land. Innrásin var ólögleg. Engin gereyðingarvopn hafa fundist. Er þetta ekki nógu alvarlegt? Er hægt að fullyrða að ekkert hafi gerst á öllum þessum tíma? Að sjálfsögðu ekki.

Við hljótum að gera þá kröfu til ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna að þeir leggi öll spil á borð í þessu máli. Þegar maður skoðar aðdraganda þess, m.a. hér á hinu háa Alþingi, vakna mjög margar spurningar, t.d.: Hvers vegna var þingsályktunartillaga Vinstri grænna stoppuð af í utanríkismálanefnd í febrúar og mars árið 2003? Af hverju var henni ekki hleypt hingað aftur inn í þingið til að umræða gæti farið fram um þessa ákvörðun hér á löggjafarþingi þjóðarinnar? Hvernig stóð á því? Þessu verða stjórnvöld að svara.

Ég lýsi að lokum eftir Guðna Ágústssyni, hæstv. landbúnaðarráðherra og varaformanni Framsóknarflokksins í þessu máli. (Gripið fram í: Hann er kominn í þagnarbindindi.) Það var hann sem gaf þennan bolta upp fyrst fyrir rúmri viku. Af hverju heldur hann ekki áfram að spila með okkur á vellinum? Hann sagði A, hann hlýtur að verða að segja B.