Þriðja kynslóð farsíma.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég tel að það sé eðlilegt hjá hv. þingmanni að velta fyrir sér hvenær sé rétti tíminn og hversu miklar líkur séu á því að fjarskiptafyrirtækin séu tilbúin til að skuldbinda sig með því að bjóða í slík leyfi. Það er fullkomlega eðlilegt að hv. þingmenn velti því fyrir sér.
Ég met það svo að mjög líklegt sé að fjarskiptafyrirtækin á Íslandi sækist eftir því að hafa aðgang að slíkum leyfum til að geta brugðist við og byggt upp þessa þjónustu sem neytendur væntanlega sækjast í.
Ég tel að fjarskiptafyrirtækin séu langbest til þess fallin að meta það hvernig þau treysti sér til þess að ganga til slíkra útboða á forsendum, eins og hv. þingmaður sagði, eins konar fegurðarsamkeppni þar sem fyrirtækin gera áætlanir um hversu hratt þau séu tilbúin til að bjóða þessa þjónustu. Þeir sem bjóða best, mestu útbreiðslu, mestu þjónustu, fái fyrstir að koma að þessu. Viðbótarhvatningin síðan er lækkun á leyfinu á forsendum útbreiðsluhraðans sem ég tel að sé afar mikilvægt fyrir hinar dreifðu byggðir og að það sé útfært skynsamlega. Ég held að þessi aðferðafræði sé fullkomlega eðlileg og við þekkjum það bæði úr útboðum á framkvæmdum, útboðum á hönnun og ráðgjafarstarfsemi, sem við höfum mikla reynslu af, þar sem ekki einungis verðið er látið ráða, (Forseti hringir.) heldur þekking, reynsla, þjónusta og geta fyrirtækjanna.