Kosningar til Alþingis.
Pétur H. Blöndal (S):
Herra forseti. Við ræðum ágæta tillögu til þingsályktunar um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis. Hér hefur nokkuð verið rætt um kosti þess að hafa landið allt sem eitt kjördæmi og á því máli eru ýmsar hliðar.
Þegar menn kjósa til Alþingis vilja menn náttúrlega kjósa um stefnur, þ.e. hvaða stefnu eigi að taka í málefnum þjóðarinnar. Hins vegar vilja menn líka kjósa einstaklinga, þ.e. að geta valið hæfan einstakling til setu á Alþingi.
Einu sinni var mjög mikið atkvæðamisvægi milli landsbyggðar og höfuðborgar og hefur svo verið lengstum. Það var minnkað mikið við síðustu breytingu og eins og ég sagði þá þá fannst mér óeðlilegt að fjöll og dalir hefðu atkvæðisrétt, það ætti að vera fólk sem ætti að kjósa. Þetta var lagað að einhverju leyti þannig að nú má misvægi ekki vera meira en tvöfalt. En þá stóðu menn einmitt frammi fyrir því að hafa landið eitt kjördæmi sem þýðir að vald flokkanna vex því þá er bara eitt kjördæmi og flokkurinn stillir upp lista fyrir þetta eina kjördæmi. Vald stefnunnar vex en einstaklingarnir minnka.
Hinar öfgarnar eru að ef landið væri allt saman einmenningskjördæmi. Þá mundi einstaklingurinn hafa yfirgnæfandi vægi og stefnan nánast ekki neitt og minni hlutinn mundi ráða öllu, þ.e. ef við hugsum okkur þrjá flokka í landinu eða fjóra og einn væri stærstur þá fengi hann alla þingmenn ef það væri jöfn dreifing um allt landið. Bæði kerfin hafa því galla og kosti.
Núverandi fyrirkomulag er því málamiðlun milli þessara tveggja leiða. Mér finnst það ekki hafa komið fram í umræðunni. Það er málamiðlun að hafa kjördæmin jafnstór með nokkuð mörgum þingmönnum, 10–11, þannig að einstaklingarnir eða stefnan komi fram, vald flokkanna verði ekki of mikið og samt sé hægt að kjósa um einstaklinga.
Menn hafa rætt ýmsar lausnir, t.d. að hafa skyldubundið prófkjör, þ.e. að flokkarnir yrðu skyldaðir til að hafa prófkjör. Það hefur þann ókost að það yrði mikið um persónulegan ríg innan þeirra liðsheilda sem ættu að starfa saman alveg fram á kjördag, þ.e. liðsheildir sem eru ákveðinn flokkur. Það yrðu miklu meiri slagsmál innan flokkanna en á milli þeirra og það held ég að sé ekki beint gæfulegt því að þau slagsmál eru oft ekki af hugsjónaárekstri eða mismunandi stefnu, heldur eingöngu persónuleg.
Svo erum við með þýska kerfið sem er þannig að kjósandi kýs bæði flokk og einstakling samtímis og einstaklingurinn þarf ekki að vera í þeim flokki sem kjósandi kaus. Það hefur í för með sér að fjöldi þingmanna er breytilegur. Ég held að það sé kannski ekki beint æskilegt en mér finnst rétt að skoða það.
Þessi tillaga verður ekki rædd nema í ljósi þess að búið er að skipa nefnd til að fara yfir stjórnarskrána í heild sinni sem er mjög þarft starf. Ég ætla rétt aðeins að koma inn á það vegna þess að mér finnst eiginlega ekki hægt að ræða þessa tillögu án þess.
Við búum við þrískiptingu valdsins en samt er í stjórnarskránni hvergi minnst á Hæstarétt, og dómskerfið fær þar mjög litla umfjöllun. Ég vil að það sé stóraukið, sú umfjöllun og þær reglur sem settar eru um dómsvaldið.
Þá finnst mér að stjórnarskráin sé sett til að vernda borgarann, hinn almenna borgara fyrir ofurvaldi ríkisvaldsins og fyrir öðrum borgurum. Það er fyrst og fremst það sem stjórnarskráin á að vernda. Til þess að hægt sé að vernda borgarann verður hann að skilja stjórnarskrána, það er grundvallaratriði. Allir borgararnir verða að skilja hana, ekki bara einhverjir örfáir lögfræðingar. Það var svo merkilegt í deilunum í sumar að þrjú álit lögfræðinga komu fram og maður gat eiginlega fallist á þau öll, mismunandi álit. Þvílíkt er stjórnarskráin flókin í dag. Hvernig á hinn almenni borgari að skilja þetta?
Það er meira að segja þannig að ef maður les stjórnarskrána virðist forsetinn sem er bæði framkvæmdarvald og löggjafarvald, merkilegt nokk, hafa geysimikil völd. Hann gerir samninga við erlend ríki o.s.frv. og maður gæti haldið að hann væri alvaldur. Þegar maður les ákvæðin nánar sér maður að hann hefur nánast engin völd, það er allt tekið í burtu.
Svona á ekki að byggja upp lagasetningu. Svona á ekki að byggja upp stjórnarskrá sem verndar borgarann fyrir ofurvaldi ríkisvaldsins og öðrum borgurum. Hún á að vera þannig — og nú ætla ég að leyfa mér að segja það þó að ég megi auðvitað ekki segja það — að fólk sem er með greindarvísitölu undir 90 skilji hana. Það má víst ekki tala um þetta fólk en það er til engu að síður. Þetta er fólk sem á erfitt með að skilja hlutina nema lesa þá hægt og ég vil að þetta fólk skilji stjórnarskrána því hún er sett til að vernda þetta fólk fyrir ríkisvaldinu og öðrum borgurum. Þess vegna vil ég að við starf þessarar nefndar sé reynt að gera stjórnarskrána eins skýra og auðskilda og hægt er. Það á aldrei að þurfa lögfræðing til að túlka hana.