131. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2005.

Kosningar til Alþingis.

26. mál
[17:34]

Flm. (Guðjón A. Kristjánsson) (Fl):

Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð í lokin. Ég vil byrja á því að þakka þá umræðu sem hér hefur farið fram. Hún hefur verið mjög málefnaleg þó að menn hafi verið að tína til ýmis atriði sem þeim finnst áhugavert að séu skoðuð. Ég tek undir það að öll þau sjónarmið sem hafa komið fram í máli þessu frá einstökum þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni, og ég þakka fyrir, hafa að mínu viti verið fullkomlega málefnaleg og það er eðlilegt að þau mál séu tekin til umræðu við endurskoðun á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.

Það er auðvitað hægt að fara í að ræða þetta efni í löngu máli og lítill vandi væri að eyða öðrum 15 mínútum í það en í sjálfu sér sé ég ekki tilgang í því. Hinir einstöku hv. þingmenn sem hér hafa komið upp hafa farið inn á ýmsar hliðar þessa máls til viðbótar við það sem ég kom inn á í framsögu minni. Samt er málið ekki tæmt og þó að ég mundi eyða 14 mínútum núna mundi ég ekki tæma málið.

Við erum að fara í þetta starf. Ég á sæti í stjórnarskrárnefndinni og er mjög ánægður með að fá að koma að því að reyna að lagfæra stjórnarskrána. Að mörgu leyti get ég tekið undir þau sjónarmið sem hv. þm. Pétur Blöndal lýsti áðan, að auðvitað á stjórnarskráin að vera þannig að þegnar íslenska ríkisins geti skilið hana og að ekki þurfi lögfræðingalið að túlka fyrir okkur stjórnarskrána og gefa út á henni þrjár eða fjórar mismunandi túlkanir. Það er auðvitað meginmarkmið, finnst mér, að stjórnarskráin verði skýr og, eins og ég sagði í fyrri ræðu minni, tryggi réttindi fólks gagnvart ríkinu.

Stjórnarskrár landa eru mjög mismunandi og það kann vel að vera að við eigum að breyta uppröðun á íslensku stjórnarskránni og byrja á því að tala um mannréttindi, hvaða rétt þegnarnir eiga o.s.frv. Um það skal ég ekki fullyrða neitt fyrir fram, enda kannski ekki meginmál hvernig stjórnarskráin er uppsett. Það kann þó að skýra réttindi fólks misvel hvernig hún er uppsett en fyrst og fremst er brýnt að það sem gert er verði skýrt og afmarkað og að sá texti verði skiljanlegur öllum sem við eiga að una sem er auðvitað íslenska þjóðin til framtíðar. Það held ég að sé meginmarkmið okkar.

Það sem við hér erum að ræða er auðvitað innlegg í það mál og verður vonandi og örugglega tekið upp af þeim sem starfa í nefndinni. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvert þetta mál ætti núna að fara, hvort það ætti að fara til allsherjarnefndar eða annað. Veit hæstv. forseti hvort það fari til hinnar starfandi nefndar um málefni sem lúta að stjórnarskránni?