131. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2005.

Tekjuskattur og eignarskattur.

32. mál
[18:13]

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Auðvitað eru okkur minnisstæð fagnaðarlæti hv. þm. Péturs H. Blöndals, talsmanns Sjálfstæðisflokksins í velferðarmálum og skattamálum, fyrir jól þegar samþykkt var veruleg skattalækkun sem kom fyrst og fremst hátekjufólki til góða. Við minnumst þeirra fagnaðarláta sem hv. þingmaður hafði þá í frammi og ég heyri að nú er hann heima aftur.

En málið sem við ræðum nú lýtur að því að skoða það að jafna sanngjarnan kostnað sem fólk hefur af því að fara til og frá vinnu, getur stækkað vinnumarkaðinn og auðveldað fólki t.d. úti um land að breyta um búskaparhætti og sækja atvinnu frá heimili hvort sem er í þéttbýli eða í dreifbýli. Það hefur ekkert með einhverjar flækjur í skattamálum að gera. Þær eru víst nægar fyrir með miklu stærri upphæðir en við fjöllum um og lýtur að því að skoða sanngjarnan hlut og rétt einstaklinga sem gætu átt hlut að máli.