Tekjuskattur og eignarskattur.
Flm. (Guðjón A. Kristjánsson) (Fl):
Herra forseti. Það var heldur leitt að þeir tveir hv. þingmenn sem hafa tekið þátt í umræðu um þetta mál skyldu koma sér upp röngum skilningi og að málið skyldi þróast yfir í þann farveg sem ég hélt að ég mundi nú bara sleppa við í þetta sinn, að hv. þm. Pétur Blöndal yrði á móti málinu. Ég lagði greinilega rangt mat á mál hans að því leyti til.
Það er þó ekki svo, hæstv. forseti, að þessi mál séu farin langt frá okkur. Ef ég veit rétt stendur til að ræða hér í þessari viku skýrslu um skattsvik á Íslandi. Gefast okkur þá tækifæri til að rekja hinar ýmsu leiðir manna og þarf ekki verkamenn til eða launþega þegar við förum að rekja þau dæmi öll og þau skattsvikamál sem hér hafa verið kynnt, held ég — ég held að það verði að segja það, þau hafa verið kynnt í þessari skýrslu, lagt mat á það að hér á landi væru skattsvik stórfelld. Ég held að sú litla tillaga sem við flytjum hér um það að launþegar megi hugsanlega draga ferðakostnað sinn frá tekjum áður en skattlagt er muni ekki halla miklu um skattsvikin á henni Gránu, hv. þm. Pétur Blöndal. (PHB: … möguleika.) Já, ef hv. þingmaður kemst að þeirri niðurstöðu eftir umræðuna um skattsvikin að þetta sé það hættulegasta sem við erum að gera eða verði sérstaklega vont verð ég fyrir miklum vonbrigðum með gáfnafar hv. þingmanns.
Ég er alveg sannfærður um að þessi tillaga sem við erum að ræða hér getur orðið til góðs, vegna atvinnuþátttöku fólks, vegna uppákomandi aðstæðna og bara þess réttlætis að fólk sitji við sama borð þegar það sækir atvinnu sína að þessu leyti til. Við vitum jú hvernig einkahlutafélögin geta nýtt sér þennan kostnað sem fellur til við að komast að og frá vinnu sinni eða til ákveðins vinnustaðar.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta mál, hæstv. forseti, en tel að umræðan um skýrsluna um skattsvik á Íslandi muni leiða ýmislegt í ljós sem við höfum verið að ýja hér að, að opnir væru margir frádráttarliðir eða margir möguleikar til þess að komast hjá því að greiða ríkinu það sem ríkisins er, sveitarfélögunum það sem sveitarfélaganna er o.s.frv. Og vonandi gjöldum við öll þeim guði sem við trúum á það sem guðs er.