131. löggjafarþing — 60. fundur,  26. jan. 2005.

Tilkynningar.

[13:35]

Forseti (Birgir Ármannsson):

Í tilefni af orðum hv. 7. þm. Reykv. s. vill forseti geta þess að þeirri ábendingu sem kom fram í ræðu hv. 2. þm. Norðvest. verður að sjálfsögðu komið á framfæri. Að sjálfsögðu er gengið eftir því af hálfu þingsins að fyrirspurnum sé svarað. Eins og hv. þingmönnum er kunnugt um geta ýmsar ástæður orðið til þess að fyrirspurnum er ekki svarað eins fljótt og almennt er gert ráð fyrir. En þessari ábendingu verður komið á framfæri, bæði innan forsætisnefndar og eins til ráðherra.