Öryggislögregla.
Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):
Hæstv. forseti. Ég fæ ekki betur heyrt en að þær hugmyndir sem uppi voru á síðasta kjörtímabili hjá þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra séu nú a.m.k. að einhverju leyti úr gildi fallnar í dómsmálaráðuneyti Björns Bjarnasonar og ég fagna því. Ég fagna því að það séu engar ráðagerðir uppi um stofnun íslensku leyniþjónustunnar.
Hins vegar vildi ég nota þetta tækifæri til þess að inna hæstv. dómsmálaráðherra frekar eftir svari við 3. lið fyrirspurnar hv. þm. Helga Hjörvars. Ráðherrann sagði að umfang væri óbreytt. Óbreytt frá hverju? Við hvað er miðað og hvernig eiga þingmenn að fá upplýsingar um hvert þetta umfang er í raun og veru á grundvelli þeirra laga sem nú eru í gildi, hæstv. forseti?