131. löggjafarþing — 60. fundur, 26. jan. 2005.
Gerð stafrænna korta.
164. mál
[14:18]
umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn. Hún var sett fram á þeim tíma þegar ekki var ljóst hvort fjárveiting fengist í verkið. En við erum svo sannarlega sammála um að hér er um mjög mikilvægt og merkilegt verkefni að ræða sem þarf að gera stofnuninni kleift að annast áfram með myndarlegum hætti.