Meðferð opinberra mála og almenn hegningarlög.
Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):
Herra forseti. Ég fagna þessu máli hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur. Ég held að þetta sé afskaplega jákvætt frumvarp sem þingheimur ætti að taka til alvarlegrar íhugunar hvort ekki beri að samþykkja. Eins og hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir kom að má finna fyrirmynd hugmyndafræðinnar sem birtist í þessu máli í Austurríki. Þessi nálgun hefur oft verið kölluð „austurríska leiðin“ sem í stuttu máli lýtur að því að fjarlægja ofbeldismann af heimilinu í stað þess að þolendur heimilisofbeldis þurfi að yfirgefa sitt eigið heimili. Ég held að við nánari skoðun sjái allir sanngirnina í því að gerandinn, afbrotamaðurinn, ofbeldismaðurinn eða hvað við köllum hann, þurfi að yfirgefa heimilið gerist hann sekur um heimilisofbeldi. Þetta er öfugsnúið eins og það er í dag og ég held að reynslan sýni það, bæði í Austurríki, Svíþjóð og Noregi þar sem þetta hefur verið gert, að þessi leið er góð og sannar að þetta er leið sem við ættum svo sannarlega að skoða og helst að samþykkja. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum í mínum huga sem lúta að bæði hugmyndafræði og forgangsröðun. Það er leiðinlegt að sjá hversu fáir þingmenn eru hérna í salnum en fyrir utan framsögumann þessa frumvarps er enginn þingmaður í salnum — þar kom einn, gott. Ég vona svo sannarlega að fleiri hv. þingmenn — hann er reyndar farinn aftur — séu núna límdir við skjáinn því að þetta er eitt af þeim málum sem við eigum að taka alvarlega til íhugunar.
Það er mikið í húfi. Heimilisofbeldi hér á landi tíðkast að sjálfsögðu og það tíðkast eflaust í mun meira mæli en fólk gerir sér grein fyrir. Þetta er málaflokkur sem margir eru sammála um að þurfi að gera eitthvað með en svo vantar herslumuninn. Þetta er málaflokkur sem stjórnarmeirihlutinn, meiri hluti þingheims, á að skoða alvarlega en ekki bara tala um á hátíðarstundum að þurfi að gera eitthvað í. Hér er tækifærið til að „gera eitthvað“ og ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem hafa hér meiri hluta ranki aðeins við sér og hugi að þessu máli.
Ég held að við þurfum líka að skoða þetta mál í stærra samhengi. Við þurfum að ræða málaflokkinn í heild sinni. Eins og fólk veit er uppistaða hegningarlaganna frá 1940, þ.e. rúmlega 60 ára gömul, og tímabært að þau lög verði tekin til endurskoðunar og sérstaklega þá ofbeldis- og kynferðisafbrotakaflinn.
Ég hef lagt fram þingmál sem lýtur að því að setja í hegningarlögin ákvæði um heimilisofbeldi en eins og staðan er núna er hvorki minnst á heimilisofbeldi né er það skilgreint í íslenskri löggjöf. Hér var á ferðinni nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem einmitt hvatti íslensk stjórnvöld til að setja slíkt ákvæði í hegningarlögin og það hafa aðrar þjóðir gert, svo sem Norðmenn og Svíar.
Að mínu mati er heimilisofbeldi því miður týndur brotaflokkur í kerfinu. Ég held að það sé nauðsynlegt að setja lagaákvæði sem skilgreini heimilisofbeldi í hegningarlögum þannig að það nái heildstætt og fullnægjandi yfir slík brot. Þannig held ég að íslenskt réttarkerfi verði betur í stakk búið til að taka á þessum brotum. Eins og staðan er núna er dæmt eftir mjög mörgum lagaákvæðum þegar kemur að heimilisofbeldi og ekkert þessara ákvæða nær almennilega utan um þann verknað sem hér er um að ræða. Þegar um er að ræða heimilisofbeldi geta ákvæði sem snerta líkamsárásir, hótanir, nauðung, nauðgun, frelsissviptingu, innbrot, kúgun, ærumeiðingar, kynferðisafbrot o.s.frv. verið til skoðunar, en ekkert þessara ákvæða nær almennilega yfir þann verknað sem hér er um að ræða.
Heimilisofbeldi er í eðli sínu — við vitum það núna mun betur en við vissum kannski áður — sérstakt að mörgu leyti, hefur ákveðna sérstöðu. Það getur verið andlegt, líkamlegt og kynferðislegt, það getur verið langvarandi ofbeldi sem er án sýnilegra áverka, ofbeldi sem á sér stað innan veggja heimilisins og byggist á broti á friðhelgi þolandans.
Eins og staðan er í dag henta t.d. líkamsárásarákvæði hegningarlaganna, sem er fyrst og fremst beitt í svona málum, ekki þessari sérstöðu heimilisofbeldisbrota. Núna miðast t.d. líkamsárásarákvæðin og dómaframkvæmdin fyrst og fremst við líkamlegu afleiðingarnar og aðferðina sem var beitt við brotið. Sem sagt, eftir því sem líkamlegu afleiðingarnar eru meiri eða hversu miklu hættulegri aðferðin sem var beitt við að framkvæma brotið er — var t.d. notað vopn, var sparkað í höfuð o.s.frv.? — því lengri dóm fær viðkomandi.
En þegar kemur að heimilisofbeldi á ekki að skipta máli hvort beinbrot hafi átt sér stað eða marblettur myndast. Alvarleiki heimilisofbeldis getur falist í allt öðru. Það er þessi andlega, líkamlega kúgun sem tekur yfir langan tíma og þarf ekkert endilega að skilja eftir sig líkamlega áverka. Þess vegna henta árásarákvæðin í 217. gr. og 218. gr. hegningarlaganna ekki þessum brotum eins vel og þau ættu að gera. Í rauninni henta líkamsárásarákvæðin sem eru sett 1940 miklu betur því ofbeldi sem við karlar verðum fyrir, þ.e. mestu líkurnar eru á að við verðum fyrir ofbeldi af hálfu einhvers ókunnugs manns úti í bæ. Þetta á ekki við um það ofbeldi sem konur og börn verða helst fyrir en það er ofbeldi sem á sér stað innan veggja heimilisins og af hálfu einhvers sem þau þekkja. Oft er það maki eða sambýlismaður.
Þetta sýnir kannski það að engar konur voru á þingi 1940 og þess vegna hugsuðu menn kannski á þessum nótum þá. Þá vantaði innsýn í málin. Ég held að það sé þá enn meiri ástæða til að við skoðum þennan kafla í heild sinni aftur.
Það er annað sem mig langar líka til að koma aðeins inn á og það er hvernig dómarar taka á svona brotum. Það er ekki nóg með að líkamsárásarákvæðin í sjálfum lögunum henti ekki heimilisofbeldisáverkum, heldur eru refsingarnar mismunandi. Þær eru t.d. meiri eftir því sem líkamlegar meiðingar eru meiri og aðferðir eru hættulegri. Til dæmis má nefna að minni háttar líkamsárás samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga er iðulega sú grein sem beitt er í heimilisofbeldismálum þrátt fyrir að um hafi verið að ræða alvarlegt heimilisofbeldi. Það er vegna þess að menn einblína, eins og ég segi, á þessar líkamlegu afleiðingar og aðferðina. Í þessu ákvæði er t.d. hámarksrefsingin eitt ár en ef við skoðum síðan meiri háttar líkamsárásarákvæði í 218. gr. er hámarksrefsingin 16 ár. Alvarlegt heimilisofbeldi getur að sjálfsögðu verið án líkamlegra afleiðinga og hættulegra aðferða en þá er hætta á minni refsingu en ella vegna þess hvernig ákvæðið er upp byggt og hvernig dómararnir hafa dæmt eftir því.
Hér er því af mörgu að taka og það er mikilvægt að við fylgjum eftir einmitt þeirri þekkingu sem við höfum á þessum málum. Henni hefur fleygt fram og við höfum séð að nágrannaþjóðir okkar, sem við lítum iðulega til, hafa gert nauðsynlegar breytingar á sínum lögum. Það er engin ástæða fyrir okkur til að sitja eftir hvað þetta varðar því að hér er auðvitað á ferðinni gríðarlega alvarlegt mál. Það er búið að sýna fram á að heimilisofbeldi er eitt algengasta mannréttindabrot í heiminum og að sjálfsögðu er nauðsynlegt og eðlilegt að hafa ákvæði um það.
Ég tel mikilvægt að við tökum þennan málaflokk föstum tökum og ég held að það frumvarp sem hér er um að ræða sé mikilvægur þáttur í því. Ég held að við eigum líka að skoða aðrar breytingar, t.d. hvort það eigi að vera opinber málsókn í heimilisofbeldismálum. Í dag er það á forræði þolandans hvort hann kærir eða ekki en margoft hefur komið fram á ráðstefnum og fundum að það er ekki besta leiðin. Lögreglumenn hafa sagt það opinberlega að þegar þeir hafa handtekið ofbeldismann á heimilinu og hann er að sofa úr sér í fangageymslu hafi það iðulega gerst, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, að fyrsta símtal sem þeir fá daginn eftir sé frá viðkomandi konu sem varð fyrir ofbeldinu kvöldið áður og hún grátbiður lögregluna um að sleppa manninum.
Þetta sýnir auðvitað að líklega er búið að margbrjóta á þessari konu og búið að brjóta og grafa undan sjálfsmynd hennar. Þeir einstaklingar sem lenda í því helvíti sem heimilisofbeldið er eru kannski ekki í stakk búnir, vegna m.a. ótta við gerandann eða vegna brotinnar sjálfsmyndar, til að taka ákvörðun um hvort eigi að fara í málsókn eða ekki og halda málinu til streitu. Það geta verið veigamikil rök fyrir því að hið opinbera komi þar að og hafi opinbera saksókn gagnvart viðkomandi manni.
Eins og hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir reifaði svo vel áðan er svipuð hugmyndafræði í þessu þingmáli sem lýtur að því að ofbeldismaðurinn er fjarlægður af heimilinu og hann má ekki koma heim þrátt fyrir að konan óski eftir því. Að þessu leyti eru þá völdin tekin af þolandanum og af gefinni reynslu getur það verið skynsamlegt í ljósi þess ofbeldis sem viðkomandi hefur orðið fyrir og í þeim mæli sem oft er um að ræða.
Hér má ýmislegt fara yfir betur og ég fagna enn og aftur þessu máli. Ég var að vona að fleiri tækju þátt í umræðunni. Ég hef ekki enn þá heyrt mótrök gegn þessu máli og ég vona svo sannarlega að þetta verði ekki eitt af þeim málum sem fari í allsherjarnefnd og sofni þar þegar við erum búin að ræða það hér, ég og hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir. Ég vil a.m.k. heyra þá mótrökin gegn málinu og ég vona að það sofni ekki í allsherjarnefndinni án nokkurrar umræðu þar fyrst engin umræða er hér nema af hálfu okkar tveggja.
Reyndar er annar þingmaður í salnum, hv. þm. Einar K. Guðfinnsson, og hugsanlega er hann að koma til að taka þátt í umræðunni. Ég hvet hann til að gera það. Að minnsta kosti vil ég enn og aftur lýsa ánægju með þetta mál og hvetja til umræðu um það á sama tíma og ég hvet til þess að þingheimur einbeiti sér að því að skoða þennan málaflokk í heild sinni. Af nógu er að taka í þeim efnum.