131. löggjafarþing — 61. fundur,  26. jan. 2005.

Meðferð opinberra mála og almenn hegningarlög.

38. mál
[15:26]

Flm. (Kolbrún Halldórsdóttir) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir góða ræðu og stuðning við þetta mál. Hann hefur sýnt það í verki að hann er karlmaður sem tekur frumkvæði í þessum efnum. Hann hefur barist á opinberum vettvangi gegn heimilisofbeldi og gert sig mjög gildandi í þeirri umræðu og er auðvitað vel þegar karlmenn koma með í raðirnar. Auðvitað verður að segjast eins og er að hingað til hafa fyrst og fremst konur háð þessa baráttu. Það hefur skort liðsaukann frá karlmönnunum en hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson hefur, eins og ég segi, tekið gunnfánann og reist hann með okkur á mjög öflugan hátt og þar með gefur hann gott fordæmi fyrir kynbræður sína. Ég vona sannarlega að þeim eigi eftir að fjölga í röðunum og sé reyndar merki þess nú þegar.

Hins vegar verður hv. þingmanni greinilega ekki að óskum sínum um að í ræðustól flykkist fleiri þingmenn til að ræða þetta mál með okkur. Er það auðvitað miður. Engu að síður er ljóst að málið á eftir að fá einhverja umfjöllun í allsherjarnefnd og þar sem við eigum nú bæði sæti þar treysti ég okkur alveg til að beita þeim þrýstingi að málið verði a.m.k. tekið til einhverrar umræðu.

Mig langar bara í lok þessarar umræðu, hæstv. forseti, að fá að vitna hér stutt í umsögn Stígamóta sem barst allsherjarnefnd á síðasta þingi þegar málið var fyrst flutt. Þar er málið stutt og þingmenn hvattir til þess að samþykkja frumvarpið, hér sé um mikla réttarbót að ræða. Það er athyglisvert sem fram kemur í umsögninni að Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta sem ritar undir þessa umsögn, hefur átt þess kost að heimsækja Austurríki og skoða ráðgjafarstöð nokkra í Vín sem var stofnuð í kjölfar lagasetningarinnar en ráðgjafarstöðin er ætluð fyrir þær konur sem verða fyrir heimilisofbeldi þar í landi og er ein af mörgum slíkum sem settar hafa verið þar upp. Guðrún Jónsdóttir lýsir í umsögninni í nokkrum orðum hvað er að gerast í þessum ráðgjafarstöðvum. Mig langar að vitna í það, með leyfi forseta. Þar segir:

„Í Austurríki gerist það sjálfkrafa að ráðgjafarstöðvar um heimilisofbeldi fá upplýsingar frá lögreglunni um brottvikninguna með faxi eða með tölvupósti og hafa snarlega samband við sambýliskonur ofbeldismannanna. Þær eru undantekningarlaust boðaðar í viðtal við löglærða ráðgjafa og boðin fagleg ráðgjöf um valmöguleika sína, lögfræðilega stöðu og félagsleg úrræði. Ráðgjafarstöðvarnar eru reknar af frjálsum félagasamtökum en vinna í nánu samstarfi við lögregluna og er um að ræða einstaka samvinnu opinberra aðila og kvennahreyfingarinnar. Samkvæmt austurrísku leiðinni er inngripið því meira en hér er gert ráð fyrir. Hvort Íslendingar ættu að ganga svo langt er umhugsunarefni. Það mundi hafa nokkurn kostnað í för með sér en ætti að sama skapi að vera árangursríkara.“

Hæstv. forseti. Það er alveg ljóst, sérstaklega líka af því sem hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson nefndi í ræðu sinni, að fórnarlömb ofbeldismanna eru í mjög veikri stöðu gagnvart þeim. Það er ljóst að Austurríkismenn hafa með því að stofna svona ráðgjafarstöðvar tryggt það að fórnarlömbin fá strax verulegan stuðning. Þegar sá stuðningur er í höndum frjálsra félagasamtaka, t.d. á borð við Stígamót, er ljóst að reynsla þeirra sem starfa í félagasamtökunum nýtist afar vel þeim þolendum ofbeldis sem þurfa á leiðsögninni að halda.

Í umsögn Stígamóta er einnig bent á að í Noregi þar sem lagaákvæði um nálgunarbann hefur verið í gildi frá því í janúar 1995 mun hafa farið fram rannsókn á gildi nálgunarbannsins eða þessara lagaákvæða og í ljós hefur komið að notkun þess er mjög mismikil eftir lögregluumdæmum. Hún mun vera mest á þéttbýlustu svæðunum og nær engin í öðrum. Í umsögn Stígamóta kemur fram að notagildi ákvæðisins ráðist að því er virðist fyrst og fremst af því að lögreglumenn og dómarar séu vel upplýstir um hvernig megi nota það og hvernig eigi að nota þetta ákvæði. Í lok umsagnar sinnar hvetja Stígamótakonur til þess að fræðsla til þeirra sem starfa eftir lögum af þessu tagi sé aukin, rétta þurfi lögreglu og dómurum hjálparhönd hvað þetta varðar og auka þurfi fræðsluna þeim til handa til að þeir aðilar séu sem best í stakk búnir til að sinna þáttum sínum í framkvæmd þessara laga.

Undir þessa hvatningu tek ég heils hugar og get upplýst það að Stígamótakonur áttu frumkvæði að því að í haust var haldin vegleg ráðstefna fagstétta sem komu að ofbeldismálum þar sem byrjað var að ræða á mjög breiðum grunni á hvern hátt t.d. menntun er háttað í þessum efnum og hvernig fagstéttirnar hafa möguleika á að auka við fræðslu sína.

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir undirtektirnar og treysti því að þeir séu fleiri þingmennirnir sem í hjarta sínu styðja þetta mál, því hér yrði um verulega réttarbót að ræða og þungt lóð á vogarskálarnar í því að minnka ofbeldi á Íslandi.