131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Félagsleg undirboð á vinnumarkaði.

[14:01]

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka þessa umræðu. Sérstaklega vil ég þakka þau skeleggu ummæli sem hv. þm. Birkir J. Jónsson lét hér falla. Mér fannst að af hálfu stjórnarliða væri hann sá eini sem skildi kjarna þessa máls. Hv. þingmaður sagði að félagsleg undirboð mundu að lokum draga úr kaupmætti og það er punctum saliens í þessu máli. Félagsleg undirboð grafa undan kaupmættinum og þar með grafa þau líka undan skatttekjum ríkisins. Það leiðir til þess að að lokum veikjast undirstöður velferðarkerfisins. Ef þau tíðkast með sama hætti og nú virðast horfur um mun það leiða til þess að íslenska ríkið fær minni tekjur, íslensk fyrirtæki verða ekki jafnsamkeppnishæf og áður vegna þess að þau hvorki geta né vilja standa í vinnubrögðum af þessu tagi. Þess vegna er þetta svo hættulegt. Hér er um að ræða margfalt brot, bæði brot á réttindum erlends verkafólks og líka brot á þeim viðteknu reglum sem við höfum sett um samfélag okkar.

Ég varð fyrir vonbrigðum með hæstv. ráðherra. Hann kom hingað en vildi ekki taka af skarið og lýsa því yfir að hann væri þeirrar skoðunar að setja ætti lög um starfsmannaleigur. Í dag hefur verið dreift tillögu sem við þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna stöndum saman að, allir þrír, um að ráðist verði í að setja slík lög. Það skiptir máli. Þau lög verða að tryggja að hægt sé að grípa til þungra viðurlaga gagnvart fyrirtækjum sem verða uppvís að brotum, jafnvel þó að einstakir starfsmenn kæri þau ekki. Þau lög verða að tryggja skattskyldu á Íslandi og jafnrétti erlendra og innlendra starfsmanna. Það er það sem þetta mál snýst um en ekki að taka þetta ítalska verktakafyrirtæki einhverjum vettlingatökum eins og Framsóknarflokkurinn hefur bersýnilega allt of ríka tilhneigingu til.