131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[15:13]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil fyrst lýsa yfir ánægju með að heyra að hv. þingmaður hafi áhyggjur af hækkun húshitunarkostnaðar á landsbyggðinni en maður var farinn að halda það að framsóknarmönnum stæði nokkuð sama.

En ég beini þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort ekki hefði verið rétt að reyna að sjá þessi vandamál fyrir þannig að menn lentu ekki í þeim vandræðum sem uppi eru.