Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.
Kristján L. Möller (Sf):
Hæstv. forseti. Nú erum við byrjuð að ræða um afleiðingar af nýsettum lögum um breytta skipan raforkumála á Íslandi. Þessi lög er 27 daga gömul og við erum að ræða þau í fyrsta skipti af mörgum á hinu háa Alþingi spái ég, aðeins í fyrsta skipti. Það á margt fleira eftir að koma í ljós. Ég sat í hv. iðnaðarnefnd þegar þetta var unnið og þar kom fram að sambærilegum lögum hafði verið breytt fimm eða sex sinnum, hvort það var nú í Noregi eða Danmörku. Ég hygg að margt eigi eftir að reka á fjörur okkar og margt eigum við eftir að ræða.
Það sem við ræðum um nú eru þær holskeflur hækkana sem hv. þm. Einar Kristinn Guðfinnsson nefndi áðan. Þær dynja yfir, sérstaklega í landsbyggðarkjördæmunum, gagnvart rafhitun. Við verðum að finna leiðir, ekki til að draga úr þeim eins og hæstv. ráðherra sagði, heldur láta þær algjörlega hverfa. Við getum ekki unað við, virðulegi forseti, 5–8% hækkun í þéttbýli eins og hæstv. ráðherra boðar eða 10% í strjálbýli. Það er engan veginn hægt að sætta sig við að þessari kerfisbreytingu verði velt t.d. á bændur og íbúa landsbyggðarinnar.
Kaldar eru þær kveðjur framsóknarmanna og sjálfstæðismanna til bænda og annarra í landinu ef þeir eiga að una 10% hækkun rafhitunar við þær breytingar sem hæstv. ráðherra boðaði hér áðan, sem eru engan veginn nægjanlegar. Ég ítreka það og segi að það er ekki nóg, virðulegi forseti, að draga úr þessum hækkunum. Þær verða að hverfa, að mínu mati.
Það verður 35% hækkun hjá Rarik í dreifbýli og 15% í þéttbýli ef ekkert verður að gert. Það verða 45% hjá Orkubúi Vestfjarða að meðaltali. Þó munar dálitlu hvort það er á Súðavík eða hinum megin við fjallið, á Ísafirði. Þetta er engan veginn hægt að sætta sig við og þetta átti ekki að koma út úr þessari lagabreytingu. Ég tek það skýrt fram að í iðnaðarnefnd var unnið mjög vel að þessu máli og ég hygg að fyrrverandi formaður nefndarinnar, hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, geti vitnað um að ég, sá sem hér stendur, lagði mikla áherslu á að fá aðila sem ekki hefðu komið að undirbúningi málsins með iðnaðarráðuneytinu til fundar við nefndina. En þeir voru nær ófinnanlegir. Það voru fjölmörg atriði sem maður hafði vara á, t.d. slík hækkun á orkuverði til rafhitunar, og ýmsa fleiri þætti. En það var ekki hægt að fá neinn aðila úr þjóðfélaginu sem treysti sér til að ræða þetta á þeim grunni.
Má ég líka minna á, virðulegi forseti, að þegar við kölluðum eftir upplýsingum um hvers virði hinar margafskrifuðu línur inni í félagið Landsnet yrðu, þ.e. á hvaða virði það yrði tekið inn, þá gátum við heldur ekki fengið það fram. Seinna hefur komið í ljós, að mínu mati, að þær tölur voru allar tilbúnar. En enginn gat sagt það við iðnaðarnefnd, hvort sem það hefur nú verið að skipun iðnaðarráðuneytisins eða einhvers annars. Ég er eingöngu að segja, virðulegi forseti, að það er mjög alvarlegt ef þingnefnd getur ekki unnið mál eins og þarf, kallað til sín sérfræðinga, fengið tölur á borðið og annað slíkt. Svo kemur þetta sem holskefla eftir að lögin hafa tekið gildi og þá þarf að fara í björgunarleiðangra eins og hæstv. iðnaðarráðherra hefur verið að tala um núna. Ráðherra fer með þetta inn í ríkisstjórn og ætlar að lækka niðurgreiðsluþakið úr 50 þús. kílóvattstundum niður í 35 þús. kílóvattstundir. Þessi breyting bitnar svo fyrst og fremst og verst á fullorðnu fólki sem býr í stóru húsnæði á landsbyggðinni og bændum og búaliði.
Virðulegi forseti. Nú er ég ekki að hvetja til að markið sé endilega svo hátt að um orkusóun verði að ræða. Það má aldrei eiga sér stað frekar en með aðra fjármuni.
Það gengur ekki, virðulegi forseti, að gera þetta svona. Ég fagna hins vegar þeim 135 millj. kr. sem ráðherrann boðar hér sem aukinni niðurgreiðslu. En betur má ef duga skal miðað við það sem ég hef hér áður sagt. Hæstv. ráðherra verður að gjöra svo vel og sækja meiri pening í niðurgreiðsluþáttinn vegna þess að það stóð líka í umsögn frá fjármálaráðuneytinu um þær 230 milljónir sem settar voru inn að það var talið að það mundi duga. Það hefur orðið að samkomulagi að setja 230 milljónir á fjárlög að hámarki, eins og fjármálaráðuneytið sagði.
Nú spyr ég, virðulegi forseti, hæstv. iðnaðarráðherra: Treystir hún sér ekki til að fá meiri pening út úr stjórnarflokkunum og ríkisstjórn í þetta til þess að draga algjörlega úr þessum þætti?
Ég kalla það ekki mjög stórmannlegt, virðulegi forseti, að skella allri skuldinni á orkufyrirtækin. Ef það er svo þá verður auðvitað iðnaðarnefnd að fara í gegnum það mál vegna þess að ráðherra orðaði það eitthvað á þá leið að orkufyrirtækin væru bersýnilega að nota tækifærið til að bæta hag sinn. Eitthvað á þá leið var sagt. Meðan þetta er að taka gildi, meðan fyrirtækin geta ekki gert betur, eins og hæstv. ráðherra sagði, þá verður ríkisvaldið að koma til sögunnar og draga algjörlega úr þessum hækkunum. Það er orðið „draga“ sem ég geri athugasemdir við og fer fram á að úr þessu verði bætt.
Virðulegi forseti. Svo stuttur tími sem þessar átta mínútur eru sem okkur almennum þingmönnum eru skammtaðar til að ræða þetta mál hér dugar ekki þannig að ég kem aftur til að ræða þetta. En það var aldrei hugsunin að íbúar á landsbyggðinni sem búa við rafhitun og hafa notið niðurgreiðslna — þeir eru í kringum 10 þús. talsins núna — eigi að fá á sig þessa hækkun. Það var aldrei talað um það. Þess vegna segi ég aftur að við verðum að finna leið með peningum frá ríkissjóði til að auka niðurgreiðsluþáttinn þannig að þetta hverfi algjörlega út. Við annað verður ekki unað í þessu sambandi. Það eru kaldar kveðjur Framsóknarflokksins til íbúa á landsbyggðinni rétt einu sinni enn og sjálfstæðismanna ef þetta á að vera svona.
Ofan á allt annað má segja um skattalækkunarpakkann sem nefndur er í sömu andrá og tími hækkandi sólar, að íbúar landsbyggðarinnar njóta ekki þeirra skattalækkana á neinn hátt miðað við íbúa höfuðborgarsvæðisins. (Gripið fram í: Eignarskattur.) Ég trúi því ekki, virðulegi forseti, að Framsóknarflokkurinn sem stundum hefur verið að nudda sér upp við landsbyggðina með því að kalla sig landsbyggðarflokk, flokk dreifbýlis, ætli að láta þetta líka ganga yfir.
Virðulegi forseti. Vegna þess að hæstv. landbúnaðarráðherra situr hér og tekur vonandi þátt í þessari umræðu þá ætla ég að spyrja hann út í það hvað eigi að gera fyrir garðyrkjubændur. Ég minntist á það mál við hæstv. iðnaðarráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum fyrir jól og fiskeldisfyrirtækin. Ég nefndi sem dæmi Silfurstjörnuna í Öxarfirði sem fær á sig 100% hækkun ef ekkert verður að gert. Ég spyr, virðulegi forseti, báða þessa hæstv. ráðherra: Hvernig á að bregðast við vanda fiskeldisfyrirtækja? Hvernig á að bregðast við vanda garðyrkjubænda og hvað kostar það? Eitt í viðbót: Hvernig á að bregðast við þeim vanda og þeim hækkunum sem dynja á sveitarfélögum á landsbyggðinni vegna hækkunar á upphitunarkostnaði t.d. sundlauga, skóla, íþróttahúsa og annarra slíkra stofnana? Á sveitarfélagið að taka þetta beint á sig?
Virðulegi forseti. Þetta eru fyrstu spurningarnar sem ég vildi leggja fyrir hæstvirta ráðherra í minni fyrri ræðu. Ég vænti þess að hæstv. ráðherrar komi hér upp og svari þessum spurningum.