Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Miðað við að raforkuverð er að hækka, sérstaklega hjá Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitunni, þó að það sé að hækka meira hjá Hitaveitunni, finnst mér vera svolítil lykt af því að vera yfirboð að ætlast til þess að þetta hækki ekki eitthvað. Það má alltaf deila um hvort þetta sé of mikið en mér finnst alla vega að það muni ansi miklu hvort við förum niður í um 10% eða hvort við erum að tala um 30% og 40% hækkun, það munar mjög miklu.
Hvað sparast við að færa þakið úr 50 þús. kwst. í 35? Það er heilmikið, 57 millj. Það er gríðarlega dýrt þegar kemur upp undir hæstu mörk að greiða þetta niður og þarna sparast mikið. Meðalnotkunin er kannski 32 þús. kwst. þannig að það er viðunandi að fara þetta niður en ég skil alveg að það er umdeilanlegt.
Við verðum líka að gera okkur grein fyrir því að 85% af kaupum manna með rafupphitun er vegna rafupphitunar, almenna notkunin er ekki nema 15%. Það þarf svo gríðarlega mikla notkun til þess að hita upp hús. Þess vegna er ég áhugasöm um að við reynum að fara í átak með fólki sem býr í stórum húsum og er kannski ekki með nægilega einangruð hús að reyna að bæta þar úr.