Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.
Ögmundur Jónasson (Vg):
Hæstv. forseti. Óhætt er að segja að ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hafi tekist að koma raforkumálum Íslendinga í óefni, að vísu með dyggilegri aðstoð Evrópusambandsins. Við skulum ekki gleyma því að haldið var í þessa för samkvæmt tilskipunum frá Brussel um breytta skipun raforkumála, nokkuð sem við hefðum að vísu getað sagt okkur frá eins og fram komu tillögur um á sínum tíma.
Hæstv. iðnaðarráðherra hefur margoft verið bent á fenið sem hún er að leiða þjóðina í og fyrir sitt leyti hefur hún ekki farið leynt með að hún hafi fengið slíkar ábendingar. Í umræðu á Alþingi 26. nóvember á síðasta ári sagði hæstv. ráðherra orðrétt, með leyfi forseta:
„Það er heldur ekkert launungarmál að það voru ekkert óskaplega margir aðdáendur frumvarpsins hér á landi þegar það kom fyrst fram. Það er eiginlega alveg stórmerkilegt að það skuli þó hafa náð að verða að lögum og vera komið á þann stað í stjórnsýslunni sem raun ber vitni. Ég er þó alltaf jafnhamingjusöm með frumvarpið og lögin og ég held að það hljóti að segja sína sögu.“
Hvaða sögu skyldi það segja okkur að hæstv. ráðherra sé svona óskaplega hamingjusöm með þessi lög? Nú þarf hinn hamingjusami ráðherra, hæstv. iðnaðarráðherra, að bregðast við veruleikanum, sem er ekki eins hamingjuríkur eða ekki á þann veg sem væntingar stóðu til. Reyndar eru mjög misvísandi yfirlýsingar gefnar út um þetta mál að hætti Framsóknarflokksins. Hæstv. ráðherra sagði fyrir stundu að það öllum hefði mátt vera ljóst að raforkureikningar mundu hækka. Á hinn bóginn hefur ráðherrann lýst því yfir, hún gerði það í fjölmiðlum í kringum áramótin, að tilefni til hækkana hafi ekki verið fyrir hendi.
Það sem um er að ræða þegar á heildina er litið er að raforkureikningur Íslendinga að hækka.
Það er annað sem er líka að gerast, og við skulum ekki missa sjónar á þessari heildarmynd, stuðningur úr ríkissjóði við raforku og húshitun kemur til með að aukast. Raforkureikningurinn hækkar og niðurgreiðslur úr vösum skattborgara aukast. Þá spyr maður um þjóðhagslegt gildi þessara breytinga.
Þegar annars vegar rekast á hinar fínu kenningar frjálshyggjunnar og markaðshyggjunnar í Evrópusambandinu og veruleikinn hins vegar, hvorn kostinn skyldu hæstv. ráðherra og ríkisstjórn velja að verja? Kenningarnar. Það eru kenningarnar sem eru réttar, það er veruleikinn sem er rangur. Það er eitthvað að honum. Þetta á allt að ganga upp en hefur ekki gert það, segir hæstv. ráðherra, þetta átti ekki að koma svona út. Það voru ekki þessi tilefni.
Ég minni á að forsvarsmenn úr orkugeiranum vöruðu við því fyrir mörgum missirum síðan að nákvæmlega þetta mundi gerast. Vísa ég þar í ummæli forsvarsmanna Landsvirkjunar, Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur sem á ráðstefnu um þessi mál lýstu því yfir að þessar kerfisbreytingar mundu óhjákvæmilega leiða til hækkunar á raforkureikningi landsmanna. Og nú er ég að horfa á það sem er að gerast hjá þjóðinni almennt.
Við erum ekki ein um þetta, við erum ekki ein um þessa reynslu. Við hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum margoft bent á þessa annmarka og komið með tillögur þess efnis að við undanskildum okkur þessari raforkutilskipun, eða gerðum tilraun til þess. Ég vek athygli á því að t.d. Kýpur og Malta fóru þá leið á þeirri forsendu að þau stæðu fyrir utan. (Iðnrh.: Nei, nei.) Var hæstv. ráðherra að leiðrétta mig? (Iðnrh.: … tala við sjálfa mig.) Tala við sjálfa sig? Ég er hérna með skýrslu sem nýkomin er frá stjórnarnefnd Evrópusambandsins. Hún var að gefa út skýrslu um reynsluna af þessum kerfisbreytingum í Evrópusambandinu. Þar kemur fram að 18 ríki af 25 eru ekki búin að innleiða þessa tilskipun. Það kemur einnig fram í greinargerð Evrópusambandsins sem er nýbirt að kerfisbreytingarnar hafi leitt til hækkunar á raforku. Skýrslan er mjög heiðarleg að þessu leyti. Hún fer í saumana á raforkugeiranum, það er sýnt fram á hvernig framleiðni hafi aukist í þessum geira, ekki í tengslum við þessar breytingar, nei, jafnt og þétt á undanförnum árum. Athugunin nær aftur til ársins 1979. Þá var framleiðnin 2,7, 1990–1995 3,6 og 1995–2001 5,7. Hún hefur verið að aukast. Ég vek athygli á því að fyrsta raforkutilskipunin kom ekki til framkvæmda fyrr en 1997 og höfðu þá mörg ríkin fengið undanþágu frá henni til ársins 2001. Og nú kemur fram í þessari skýrslugerð frá Evrópusambandinu að, eins og ég sagði áðan, 18 ríki af 25 hefðu ekki framkvæmt tilskipunina eins og til hafði staðið.
Það er ekki aðeins hæstv. iðnaðarráðherra sem segir að svart sé hvítt og hvítt sé svart í málflutningi sínum. Hér stóð upp áðan hæstv. landbúnaðarráðherra og sagði að þetta væri allt til mikilla hagsbóta, þessar breytingar, sérstaklega fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni. Hann veifaði þessari grein hér. Hann sagði að þingmenn stjórnarandstöðunnar væru að sverta myndina. Hann vitnaði í einn þingmann í þessari grein. Hver skyldi það vera? Hv. þm. Drífa Hjartardóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Og hér er fyrirsögnin: Raforka til húshitunar hækkar. Svona eru fyrirsagnirnar í Bændablaðinu og hér stendur upp hæstv. landbúnaðarráðherra og talar á þennan veg.
Að lokum þetta, hæstv. forseti: Ég held að þegar allt kemur til alls vilji Íslendingar og einnig þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, ekki þá mismunun á milli þegna landsins sem við erum nú að verða vitni að. Tillaga okkar í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði (Forseti hringir.) er sú að nú setjist menn yfir þessi mál í tveimur nefndum þingsins, (Forseti hringir.) iðnaðarnefnd og fjárlaganefnd, fari í saumana á þessum málum og reyni að sameinast um tillögur til úrbóta.