131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[17:01]

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Hér hefur orðið allítarleg umræða og ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem nefnt hafa að ágætt væri að gefa sér lengri tíma til að ræða það enda um mjög víðfeðmt mál að ræða.

Hæstv. forseti. Í fyrri ræðu minni komst ég ekki, sökum tímaleysis, að því ræða um atvinnumálin og atvinnuvegina á landsbyggðinni. Þar sjáum við í fyrsta lagi fram á nokkra óvissu eins og sakir standa. Þá á ég í fyrsta lagi við fiskeldið, sem nú er í viðræðum við Landsvirkjun um að það fái áfram ódýra orku. Vonandi er það á döfinni að þeir geri a.m.k. eins árs samning við Landsvirkjun um orkuverð. En framhaldið er hugsanlega óráðið. Það er óásættanlegt því að það er mikilvægt að stjórnvöld sjái til þess að umhverfi fiskeldisfyrirtækja sé tryggt á þann veg að þau geti starfað áfram.

Það er staðreynd að sum byggðarlög byggja að miklu leyti á slíkri starfsemi vegna þess að fiskeldi fylgja oft á tíðum mjög fjölmennir vinnustaðir. Hæg eru heimatökin, við getum t.d. nefnt fyrirmyndarfyrirtæki eins og Silfurstjörnuna á Kópaskeri. Þar vinna um 20–30 manns í ekki mjög stóru sveitarfélagi. Það er alveg ljóst að ef slíkur vinnustaður mundi leggjast af þá væri það mikið áfall fyrir Norður-Þingeyjarsýslu, Kópasker og nærsveitir. Ég legg mikla áherslu á að við stjórnmálamennirnir vinnum að því að byggja fiskeldinu það umhverfi að það geti starfað áfram og haldið áfram að vaxa.

Mikið hefur verið rætt um að nú sé orkuverð til húshitunar að hækka. Ég vil benda á eitt í því samhengi, að árið 1990 var 350 millj. kr. varið til niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði á landsbyggðinni, á verðlagi ársins 2004. Á næsta ári er gert ráð fyrir að verja til þess málaflokks 770 millj. kr. Þetta er meira en tvöföldun og hlýtur að sýna þann vilja stjórnmálamanna að fólk í dreifðari byggðum búi við lágt raforkuverð.

Hins vegar er alveg ljóst að iðnaðarnefnd á eftir að fá svör um hvernig umræddar aðgerðir koma út gagnvart einstökum landsvæðum, sérstaklega á landsbyggðinni, hvort sem það eru þéttbýlisstaðir á landsbyggðinni eða í dreifbýli og eins gagnvart mismunandi stærð húsnæðis. Við eigum eftir að inna hagsmunaðila eftir svörum við þessu öllu og á margt eftir að koma á daginn í nýju umhverfi raforkumála. En það má ekki koma okkur á óvart að óvæntir hlutir komi upp í framtíðinni hvað þetta varðar enda er málið mjög umfangsmikið eins og hv. þm. Jóhann Ársælsson hefur nefnt í ræðum sínum, sem mér finnast hafa verið með þeim málefnalegri sem stjórnarandstaðan hefur flutt í dag og ég hlakka til samstarfs við hv. þingmann í iðnaðarnefnd.