131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[17:11]

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Ég held að það hafi komið vel fram í þessum umræðum hve hroðvirknislega og illa unnar raforkulagabreytingarnar hafa verið og hæstv. iðnaðarráðherra hefur undirstrikað það í ræðu sinni að hún hafi ekki gert sér grein fyrir því á hvaða vegferð hún var. (Iðnrh.: Nú, sagði ég það?) Þessar hækkanir, boðaðar hækkanir í upphafi þessa árs, komu henni algjörlega í opna skjöldu. Hún hefði betur hlustað á ræður þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og tillöguflutning bæði á síðasta ári og í hittiðfyrra þegar þessi mál voru til umfjöllunar.

Við lögðum til fyrir jólin að þessu máli yrði frestað, að setja þessar breytingar í gang, á meðan komast mætti til botns í áhrifum þeirra. Það er ekki lengra síðan en svo að á síðustu klukkutímum þingsins fyrir jól nefndum við þetta og vöruðum við en hæstv. ráðherra skellti skollaeyrum við því og anaði áfram í einkavæðingardraumi.

Það er mjög athyglisvert sem hv. þingmaður Ögmundur Jónasson upplýsti okkur um í ræðu sinni þar sem fram kom að 18 af 25 ríkjum innan Evrópusambandsins hefðu ekki að fullu sett í gang þessa Evróputilskipun um markaðsvæðingu raforkugeirans. Það er mjög athyglisvert, 18 af 25. En við hér, eyríkið, hlaupum á eftir þeim tilskipunum og missum náttúrlega af okkur skóna á þeim hlaupum.

Það er líka athyglisvert sem kemur fram í skýrslunni sem gefin er út núna 5. janúar um árangur í einkavæðingarmálum raforkunnar í Evrópu. Þær staðfesta gagnrýnisraddir sem hafa komið upp um þetta kerfi. Með leyfi forseta, stendur í úttekt á skýrslunni sem birtist á vef BSRB, um áhrif breytinganna:

„Að fákeppni muni verða ríkjandi, að fjárfestingum í kerfinu og viðhaldi verði ábótavant og þar með sé afhendingaröryggi raforku stefnt í hættu, upplýsingar til neytenda verði ógegnsæjar og að kerfið muni leiða til dýrari raforku, sérstaklega til smákaupenda. “

Er þetta ekki nákvæmlega hið sama og við höfum varað við?

Frú forseti. Ég tel afar brýnt að við hættum að fara eftir því sem hæstv. ráðherra langar til, finnst eða gæti hafa dottið í hug og þetta mál fari til iðnaðarnefndar Alþingis til meðhöndlunar. Þaðan komi nákvæm tillögugerð inn til fjárlaganefndar og málið verði unnið þar. Þar á að taka á þessu.

Markmið okkar er að í landinu ríki jöfnuður hvað varðar aðgang að, notkun og verð á raforku. Þetta er almannaþjónusta og það á ekki að skipta þjóðinni upp í fylkingar eftir búsetu eða öðru þegar kemur að aðgangi eða verði á þeirri þjónustu. Ljóst er að Alþingi verður sjálft að taka það mál að sér og ákveðnari tökum en hingað til.