Skýrsla iðnaðarráðherra um framkvæmd raforkulaga.
Jón Gunnarsson (Sf):
Frú forseti. Umræðunni er það þröngt sniðinn stakkur að örðugt er að koma frá sér öllu því sem mann langar til að koma frá sér í jafnstuttum ræðum og nú eru í boði.
Þegar við horfum á umræðuna eins og hún hefur verið í dag hafa þingmenn komið og meira að segja nefndarmenn úr iðnaðarnefnd og lýst undrun sinni á því hve hækkanirnar eru miklar út um allt land á raforkuverði. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir því í vinnunni sem fram fór í nefndinni við hina nýju raforkulöggjöf að svona yrði þetta. Menn þurfa ekki að vera hissa á því þó þingmenn hafi ekki gert sér grein fyrir þessu þegar við förum yfir hvað hæstv. ráðherra sagði í umræðunni og lét hafa eftir sér varðandi hækkunartilefni. Ég verð að segja hæstv. ráðherra það í fullri hreinskilni að fyrir íbúa á Suðurnesjum skiptir það engu máli ef rafmagnsreikningurinn hækkar úr 10 þús. kr. í 12 þús. kr. yfir mánuðinn hvort það séu einhverjar prósentur á bak við það hér eða þar. Ef krónurnar sem íbúarnir þurfa að greiða eru þetta mörgum sinnum fleiri en þær voru þegar gamla kerfið gilti þýðir það bara hækkun á íbúana og ekkert að hártoga það neitt meira.
Við verðum að gera þá kröfu til stjórnmálamanna, hvort sem þeir eru alþingismenn eða ráðherrar, að þeir segi frá eins satt og rétt og þeir geta á hverjum tíma. Við getum ekki sætt okkur við það að á jafnstuttum tíma og liðinn er frá því að við samþykktum raforkulögin og þangað til hæstv. ráðherra flytur skýrslu um hvaða áhrif lögin muni hafa breytist hlutirnir algerlega, að hlutunum sé algerlega snúið á haus, að svart verði hvítt og hvítt verði svart. Farið var yfir það í umræðunni að það væri mikið hækkunartilefni ef lögin yrðu á orkuveitusvæði Hitaveitu Suðurnesja og á orkuveitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur. Hæstv. ráðherra blés á það í ræðum sínum og kemst ekki undan því sama hvað hæstv. ráðherra reynir að rembast eins og rjúpan við staurinn í því.
Mér finnst líka að við sem höfum hlýtt á umræður í dag höfum ekki fengið svör við því hvað hæstv. ráðherra ætlar sér varðandi sameiningu Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Rarik í eitt fyrirtæki. Við höfum heyrt af því í fjölmiðlum að þetta standi jafnvel til. Búið er að spyrja um það í umræðunni en engin hrein svör komið frá ráðherra hvort einhverjar slíkar viðræður séu í gangi og hvort það sé ætlan hæstv. ráðherra iðnaðarmála að beita sér fyrir sameiningu þessara þriggja fyrirtækja. Ef það verður verður engin samkeppni á raforkumarkaði á Íslandi þegar búið er að búa til risa í ríkiseigu sem hefur jafnvel yfir 90% af raforkumarkaðnum undir sér, hvaða samkeppni verður milli þessara risa og hinna fyrirtækjanna á markaðnum? Hún getur engin orðið.
Aðeins til að hnykkja á því sem ég var að tala um varðandi fiskeldisfyrirtækin, þá er mér kunnugt um að viðræður eru í gangi við Landsvirkjun um sérkjör. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þær viðræður standa í dag en veit þó að hæstv. ráðherra mun þurfa að koma að því. Því óska ég eftir hreinum svörum frá hæstv. ráðherra hvort það geti verið eins og flogið hefur fyrir að einungis verði tekin stærstu fiskeldisfyrirtækin á Íslandi og þeim veitt sérkjör en hin smærri sem verið hafa á sérkjörum hingað til skilin eftir í kuldanum til að deyja drottni sínum.