131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarráðherra um framkvæmd raforkulaga.

[17:58]

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra að því í fyrsta lagi hvort hún sjái að samkeppnin vaxi við að steypa öllu raforkukerfinu í tvö fyrirtæki. Af hverju steypum við þeim ekki í eitt fyrirtæki í eigu þjóðarinnar? Er þá ekki mestri hagræðingu náð að þjóðin eigi allt heila fyrirtækið?

Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hún vilji beita sér fyrir því að allar gjaldskrár og allar forsendur fyrir kostnaði dreifiveitna og Landsnetsins verði gerðar opinberar. Hvernig var t.d. Landsnetið myndað, hvernig var kostnaðardreifing einstakra hluta? Hver er arðsemiskrafan? Hver er fjármagnskostnaðurinn sem þar er á ferðinni? Hvað tók Landsnetið við af skuldum, á hvaða kjörum o.s.frv.? Ég held að það sé mjög mikilvægt að allir þættir séu gerðir fullkomlega gagnsæir.