131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[18:00]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég sé fyrir mér samkeppni í framtíðinni með sameiningu þessara fyrirtækja vegna þess að þau eru í mismunandi rekstri. Landsvirkjun er í framleiðslu, Rarik og Orkubú Vestfjarða eru fyrst og fremst í dreifingu, þó að Orkubúið sé reyndar í þó nokkurri framleiðslu. (GAK: 40%.) Að því leyti til fer mjög vel saman að steypa þeim saman í eitt fyrirtæki. Við höfum fjallað heilmikið um þetta í ráðuneytinu og ég tel að það sé rétt.

Fyrirtækjum í samkeppnisrekstri eru ákveðin takmörk sett í sambandi við að opna bókhald sitt, ég held að öllum sé það ljóst. Hins vegar gegnir öðru máli í sambandi við sérleyfisreksturinn, og Orkustofnun hefur ákveðna þætti sem hún getur áreiðanlega gert iðnaðarnefnd kunna. Við verðum bara að skoða frekar hversu langt má ganga í því. En til framtíðar er það ekki þannig að gjaldskrár og allar forsendur til gjaldskráa séu (Forseti hringir.) til umfjöllunar á Alþingi.