131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[18:03]

Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra svaraði hér eða reyndi að svara spurningu um fiskeldi og byrjaði á því að segja að fiskeldi heyrði ekki undir hæstv. ráðherra. Kötturinn sagði: Ekki ég.

Ég skal umorða spurninguna. Til að reyna að fá ærlegt svar frá framsóknarmönnum þessa dagana virðist maður þurfa að endurtaka spurningar aftur og aftur og helst umorða þær þannig að ég skal umorða þessa spurningu. Landsvirkjun heyrir sannarlega undir hæstv. ráðherra og því spyr ég: Hefur það komið til tals eða hefur þess verið óskað að iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið fallist með formlegum hætti á að afsláttarkjör verði veitt á þessu ári til fiskeldis og að það fari ekki gegn verklagi og reglum sem nú eru í gildi?

Ég held að það sé mikilvægt að hæstv. ráðherra svari þessu bara beint eins og spurt er. Hefur verið óskað eftir því með formlegum hætti að hæstv. iðnaðarráðherra fallist á að fiskeldisfyrirtæki á Íslandi geti notið sérkjara áfram?