131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[18:13]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég sé það fyrir mér að því fyrirtæki sem verður til yrði breytt í hlutafélag eftir nokkur ár og mér finnst ekki ólíklegt að þróunin gæti orðið sú að fleiri aðilar kæmu að því. Af því að lífeyrissjóðir voru nefndir hér finnst mér ekki óskynsamlegt að nefna lífeyrissjóði í þessu sambandi. (ÖJ: Þá verða þeir að krefjast …)