131. löggjafarþing — 62. fundur,  27. jan. 2005.

Skýrsla iðnaðarrh. um framkvæmd raforkulaga.

[18:14]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég endurtek að þetta er mál sem heyrir undir landbúnaðarráðherra en í forföllum hans get ég sagt og endurtekið það sem mér finnst ég vera búin að segja áður að það er til umfjöllunar í ríkisstjórn hvernig á málefnum garðyrkjunnar verður tekið. Ég tel að sá atvinnuvegur sé mjög mikilvægur og ég trúi ekki öðru en að eitthvað verði hægt að gera sem geri það að verkum að menn geti haldið áfram sínum blómlega rekstri. Það skiptir mjög miklu máli fyrir þjóðina sem heild og ekki síst fyrir þá bændur sem þar eiga í hlut.