Umfang skattsvika á Íslandi.
Dagný Jónsdóttir (F):
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessa skýrslu um umfang skattsvika á Íslandi. Ég verð að segja að það er þó ljós í myrkrinu að heyra að skattsvik í formi vanframtalinna tekna kunni að hafa minnkað og skil í virðisaukaskatti batnað. Þetta er jákvæð þróun og ljóst að tæknin hefur hjálpað mikið upp á þetta eins og kemur fram í skýrslunni.
Hins vegar eru vandamálin stór sem blasa við, þ.e. að skipuleg skattsvik eiga að hafa aukist og nýjar skattsvikaleiðir hafa bæst við og þó einkum vegna alþjóðavæðingarinnar en við erum hluti af miklu stærri markaði nú en áður. Tölurnar tala sínu máli og áætlað tekjutap ríkis og sveitarfélaga vegna skattsvika geta verið 8,5–11,5% af heildartekjum. Þetta eru gríðarlega stórar upphæðir en í heild gerir þetta allt að 35 milljarða kr. á árinu 2003 og það er ýmislegt sem hægt væri að gera fyrir þá upphæð.
Ég ætla í ræðu minni að fjalla stuttlega um einn þátt skýrslunnar en hann varðar þann mikla mun sem er á skattlagningu einstæðra foreldra og sambúðarfólks eða hjóna. Kerfið okkar gerir mun á einstaklingum með börn eftir því hver hjúskaparstaða þeirra er. Í gegnum tíðina hefur það tíðkast í nokkrum mæli að sambúðarfólk virðir ekki lögheimilislög og skráir sig annars staðar til heimilis en það hefur fasta búsetu. Með því öðlast það rétt til hærri vaxta og barnabóta og auðvitað fylgir margt annað með í pakkanum eins og lægri leikskólagjöld og fleira. Við erum því að horfa upp á það að reglur sem höfðu það að markmiði að bæta hag einstæðra foreldra eru misnotaðar af öðrum.
Ég hef heyrt af því að í sumum löndum er eftirlit afar öflugt. Eftirlitsmenn fylgjast með ferðum fólks á leikskóla og athuga hvort báðir foreldra fylgi börnum eða ekki og fari inn á heimili og telji þar til dæmis tannbursta til að afla sannana fyrir búsetu fólks. Ég er ekki að mæla með því að við förum nákvæmlega í þennan gír en það er alveg ljóst að mörgum er nóg boðið og hafa kallað eftir því að ríkisvaldið bregðist við þessari hegðun. Skatturinn hér hefur ekki gengið svo langt í eftirliti en staða hans er erfið þar sem eingöngu er byggt á skráningum. Reyndar er dæmi um að yfirskattanefnd úrskurðaði um mál fyrir nokkrum árum þar sem húsfélag benti á einstakling sem væri að svindla undan skatti með þessum hætti og var viðkomandi tekinn í skýrslutöku og málið leiðrétt. Við höfum því svo sannarlega dæmi þess að nágrannavarslan gangi nokkuð langt hér á landi.
Við sem heyrum mikið í fólki vitum að mál af þessu tagi fara illa í fólk. Það er ekki óeðlilegt þar sem við horfum upp á það að samneyslan eykst ár frá ári og sífellt færri standa undir skatttekjunum því fleiri og fleiri eru ekki á atvinnumarkaði vegna bóta og annarra ástæðna. Við könnumst við þá umræðu að fjölskyldan eigi að vera hornsteinn í hverju samfélagi. Deilir enginn um þetta atriði og hafa stjórnvöld farið út í ýmsar aðgerðir á undanförnum árum til að styrkja stöðu barnafólks. Má þar nefna lækkun skatta, hækkun barnabóta, 90% húsnæðislán og lækkun endurgreiðslubyrði námslána. Þetta eru allt jákvæðar aðgerðir og þá sérstaklega fyrir millitekjufólk.
Hins vegar er það mjög mikið áhyggjuefni að ungt fólk skuli í dag þegar það stofnar til sambands hugleiða þann möguleika að vera frekar skráð á sínum staðnum hvort með búsetu. Menn tala um að áður fyrr hefðu margir haft innbyggða afsökun vegna þessa en ástæðan var sú að hart var í búi og fólk þurfti að gera þetta til að eiga fyrir því allra nauðsynlegasta. En nú heyrir maður hins vegar að æ fleiri stundi þetta til að græða. Fólk er jafnvel ekki að fjármagna grunnneyslu með þessu og í engu tilfelli er þetta ásættanlegt.
Ég heyrði um daginn í útvarpinu viðtal við fjármálaráðgjafa. Ég náði því miður ekki nafni hans en hann sagði þar blákalt að skilnaður væri oft eina leiðin til að rétta við hag heimilisins. Þetta tel ég vera afar slæm skilaboð og viðkomandi var þarna að hvetja til lögbrots. Einnig hefur heyrst í prestum sem benda á það að einhverjir grípi til hjónaskilnaða í þessum sama tilgangi. Þetta er raunveruleikinn og við verðum að bregðast við.
Virðulegi forseti. Í skýrslunni sem við ræðum leggur nefndin til nokkur atriði til að sporna við skattsvikum. Eitt þessara atriða varðar einmitt umræðuefni mitt hér í dag og þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Nefndin telur að ástæða sé til að huga að breytingum á reglum um bætur í skattkerfinu og að e.t.v. verði leitað annarra leiða til að rétta hlut einstæðra foreldra en í gegnum skattkerfið með hærri barnabótum og vaxtabótum en til sambúðarfólks. Ákaflega viðkvæmt og erfitt er að upplýsa brot af þessu tagi og gengið nokkuð nærri friðhelgi einkalífs með rannsókn á þeim. Sé staða sambúðarfólks og einstæðra foreldra gerð jöfn í skattalegu tilliti mætti veita einstæðum foreldrum þá viðbótaraðstoð sem talin er nauðsynleg með öðrum hætti, t.d. í gegnum almannatryggingakerfið eða sveitarfélög sem kunna að vera betur í stakk búin til að leggja mat á þörf og forsendur slíkrar aðstoðar en skattkerfið. Einnig mætti athuga hvort rétt væri að gera viðbótarbætur háðar sérstakri umsókn og yfirlýsingu viðkomandi aðila.“
Virðulegi forseti. Mér finnst þetta mjög athyglisverðar tillögur og vert að skoða þær áfram. Ég held að við séum í þeirri stöðu að geta ekki annað en íhugað þær vel. Það að taka upp öðruvísi félagslega aðstoð sem yrði á vegum sveitarfélaganna er að mínu mati hugmynd sem þarf að þróa áfram. Sérstaklega mundi þetta ganga vel í smærri sveitarfélögum en þó að vitað sé að minna sé um undanskot í litlum samfélögum vegna nálægðarinnar tíðkast þau svo sannarlega. Ég vil í þessu tilliti fagna því sem hæstv. fjármálaráðherra sagði áðan að endurbætur á vaxtabótakerfinu sé hafin í félagsmálaráðuneytinu.
Ég held að það sé gott að nefna eitt örstutt dæmi sem birtist í grein Ástu Kristjánsdóttur í Tíund á síðasta ári, en hún fjallar þar um hvað liggi því til grundvallar að sambúðarfólk ákveði að fylgja ekki lögheimilislögum og skrái sig ekki á sameiginlegt heimilisfang þrátt fyrir að hafa komið sér upp heimili og fjölskyldu saman. Dæmið fjallar um þau Jón og Rósu sem eiga tveggja ára þríbura og Jón er enn skráður í foreldrahúsum en Rósa í nýju íbúðinni þeirra. Rósa er skráð fyrir eignum og skuldum. Jón hefur árstekjur upp á 6 milljónir en Rósa upp á 1,3. Mismunur barnabóta hjá þessu fólki nemur hvorki meira né minna en 574.442 kr. og þar að auki eru vaxtabætur 190.522 kr. hærri. Jón og Rósa græða því ef svo má segja eða hvernig sem maður vill orða það tæplega 770 þús. kr. á því að óska ekki eftir samsköttun. Rétt er að taka fram að dæmið er einfalt en það endurspeglar einmitt þá freistingu sem sambúðarfólk stendur frammi fyrir vegna skráningar í þjóðskrá. Fyrir utan þetta getum við nefnt að það koma til niðurgreiðslur leikskólagjalda og ýmsar tekjutengdar bætur almannatrygginga þannig að þetta getur undið upp á sig.
Virðulegi forseti. Ég óttast að með því að hækka barnabætur sem svo sannarlega er brýnt og við höfum boðað og það er brýnt fyrir fólk, en ég óttast að þá muni þetta vandamál vaxa enda er tilhneigingin sú að eftir því sem bætur hækka er eftir meiru að slægjast og fleiri sem nýta sér þá leið. Þess vegna er það hlutverk okkar að reyna með öllum tiltækum ráðum að tryggja að sem fæstir misnoti kerfið enda óþolandi þegar kerfið okkar sem gerir ráð fyrir að hjálpa þeim sem þurfa á aðstoð að halda er misnotað og hugsanlega eyðilagt. Við skulum muna að vitaskuld eru peningar ekki aðalatriðið þegar kemur að mikilvægi fjölskyldunnar en þeim mun mikilvægara er að skilaboð samfélagsins séu skýr og þau mega ekki vera í andstöðu við hagsmuni fjölskyldunnar. Skýrslan sem hæstv. fjármálaráðherra kynnti hér kynnir leiðir sem ég legg áherslu á að við skoðum með opnum huga.
Ég vil í lokin þakka nefnd fjármálaráðherra fyrir afar vel unna og fróðlega skýrslu og ég veit að fjármálaráðuneytið mun áfram vinna að því að sporna gegn skattsvikum eins og það hefur gert hingað til og er þessi skýrsla mikilvægt veganesti í þeirri vinnu.