131. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2005.

Skattskylda orkufyrirtækja.

364. mál
[12:50]

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Ég ætla örstutt að kveðja mér hljóðs. Annars vegar gleðst ég yfir því að loksins skuli ríkisvaldið skattleggja orkufyrirtækin. Þetta er í anda þeirrar stefnu að víkka út og breikka skattstofna og fækka undanþágum og þar með möguleikum til skattsvika, sem við ræddum um fyrr í dag. Þetta er mjög til bóta og mjög ánægjulegt. Nú þurfa menn bara að skoða fleiri fyrirtæki sem njóta slíks skattfrelsis. Þar ber náttúrlega hæst opinber fyrirtæki sem eru sum hver enn þá í samkeppnisrekstri.

Hér er lagt af stað við að skattleggja orkufyrirtæki. Það má svo ræða það hvort gefa þurfi þeim svo langan tíma til að breyta bókhaldinu hjá sér. Menn ættu að geta unnið dálítið hraðar á þeim bæjum.