131. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2005.

Skattskylda orkufyrirtækja.

364. mál
[13:55]

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í fyrsta lagi tel ég að við eigum að horfa til langrar framtíðar og við eigum að horfa til reynslunnar sem menn standa nú frammi fyrir. Evrópusambandið er nýbúið að birta skýrslu þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með markaðsvæðingu orkugeirans. Hv. þingmaður talar um að mikilvægt sé að fyrirtækin keppi sín í milli. Hið gagnstæða hefur verið að gerast í Evrópu. Fákeppnin er að festa sig í sessi. Það er minni samkeppni en menn höfðu ætlað. Það eru minni fjárfestingar í þessum geira en menn töldu að mundi verða. Þetta stendur þeim geira, að því er menn óttast, fyrir þrifum. Við eigum að læra af þeirri reynslu og fara varlega, vegna þess að þó eitthvað hafi verið samþykkt með lögum er sem betur fer ekki bannað að breyta lögum aftur. Við eigum að sjálfsögðu að horfa á þessi mál til langrar framtíðar.

Ég velti því fyrir mér hvort hv. þm. Jóhann Ársælsson hafi íhugað þá leið sem var farin í vatninu og sem t.d. bandarísk verkalýðssamtök og neytendasamtök hafa lagt áherslu á í þessari grunnþjónustu, að jafnvel þótt sá geiri sé markaðsvæddur sé sett þak á hámark leyfilegrar arðtöku út úr rekstrinum. Þetta er það sem þeir aðilar hafa lagt áherslu á.

Þá segi ég, vegna þess að verið er að hvetja lífeyrissjóðina til fjárfestinga á þessu sviði: Ef við förum þessa leið með þakið verðum við þá ekki að breyta lögunum varðandi lífeyrissjóðina og heimila þeim að hugsa á samfélagslega vísu gagnstætt því sem þeim er gert að gera í þeim lögum sem þeir búa við?

Ég er bara að vekja athygli á því umhverfi sem menn hafa skapað á undanförnum árum og að menn eigi ekki að hrapa að neinu. Við eigum að fara varlega. Við erum að tala um grunnþjónustu í samfélaginu og við eigum að sýna svolítil hyggindi og reyna að læra af reynslu manna, en ana ekki bara áfram með hamingjuyfirlýsingar eins og hæstv. fulltrúi Framsóknarflokksins í ríkisstjórninni hefur gert.