131. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2005.

Skattskylda orkufyrirtækja.

364. mál
[13:58]

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður talaði um að setja þak á arðsemina. Það var gert hvað varðar Landsnetið, þar var sett þak á arðsemina. Ég tek undir með hv. þingmanni að menn eiga auðvitað að vanda sig og fara mjög varlega. Ég sé ekki fyrir mér hvernig samkeppni verður á þessum markaði og hef margsagt það í ræðustól. Þess vegna þurfa menn auðvitað að vanda sig við þetta allt saman. En ég tel að þau skref sem menn þurfa að taka séu nokkuð augljós. Það verður að greina á milli eignaraðilanna. Það verður að sjá til þess að sömu aðilarnir séu ekki allt í kring og undir og yfir borðinu. Þetta gerist ekki nema með því að hið opinbera hafi stefnu hvað þetta varðar. Sú stefna hefur ekki litið dagsins ljóst og ég hef kallað eftir henni hvað eftir annað hér í umræðum í ræðusal Alþingis. Það hefur aldrei fengist fram hvað menn ætla sér hvað þetta varðar. Mér finnst þetta vera það mikilvægt mál að það sé niðurlægjandi fyrir þingmenn og Alþingi að hér skuli ekki hafa farið fram um það alvöruumræða frá hendi þeirra sem með stjórnina fara í landinu.