Skattskylda orkufyrirtækja.
Sigurjón Þórðarson (Fl):
Herra forseti. Frumvarp það sem hér er til umræðu virðist fljótt á litið snúast um jafnræði, að orkufyrirtæki eigi að standa jafnfætis öðrum fyrirtækjum hvað varðar skattlagningu. Auðvitað getur maður tekið undir það svona fljótt á litið. Þetta virðist vera saklaust frumvarp.
Það eru ýmis önnur frumvörp sem hafa farið hér inn sem snúa einmitt að raforkumálum sem hafa litið nokkuð sakleysislega út, en þegar betur er að gáð og þegar á að fara að framkvæma umrædd lög undir stjórn Framsóknarflokksins, þá hefur nú annað komið í ljós, því miður, fyrir íbúa landsbyggðarinnar sérstaklega. Fram kom hjá hv. þm. Kristjáni L. Möller að upplýsingagjöf iðnaðarnefndar hefði verið ábótavant þegar þau lög voru sett og í vinnslu þeirra laga. Ég get staðfest það og það eru fleiri sem geta staðfest það, m.a. formaður iðnaðarnefndar sem sagði í þessum ræðustól að upplýsingagjöf hvað varðar það frumvarp hefði verið villandi. Í sömu umræðu, svo undarlegt sem það nú er, kom einmitt sjálfur hæstv. iðnaðarráðherra og sagði að hækkunin hefði alltaf verið fyrirsjáanleg. Það virðist því vera svo að sjálfur hæstv. iðnaðarráðherra hafi staðið í blekkingarleik gagnvart sínum eigin flokksmönnum og meira að segja blekkt þingmann sinn, hv. þm. Birki Jón Jónsson, í sínu eigin kjördæmi og veitt honum villandi upplýsingar. Ég tel einmitt að þetta sé tilefni til þess að fram fari rannsókn á þessu máli og jafnvel opinber rannsókn á þessum raforkumálum, því það er ákaflega skrýtið þegar hv. þm. Birkir Jón Jónsson kemur hér í ræðustól og talar um að upplýsingagjöf hafi verið villandi. Ég tel það. Ég get staðfest það og fleiri í iðnaðarnefnd, t.d. Kristján Möller, og ég get tekið undir orð hans hvað varðar upplýsingagjöf.
Ég er nú farinn að efast um rétta upplýsingagjöf og vinnubrögð hæstv. iðnaðarráðherra og ráðherra byggðamála vel að merkja. Ég tel í rauninni að Samfylkingin hafi verið of trúgjörn í þessu máli, hún hafi gleypt það hrátt sem hæstv. iðnaðarráðherra hafi komið með inn á borð nefndarinnar.
Ég var búinn að læra af öðru máli sem kom hér inn og var kynnt með mjög villandi málflutningi. Það var lítið mál en varðaði landsbyggðina en í því kom fram mjög villandi upplýsingagjöf um að hækkunin á sementsverði yrði óveruleg. Samt staðfesti sjálfur hæstv. ráðherra sem færði þær upplýsingar inn á borð skömmu síðar að hækkunin hafi verið í tugum prósentna, 75% hækkun. Það kom fram í svari hér á Alþingi. Þess vegna ákváðum við í Frjálslynda flokknum að vara okkur á þeirri upplýsingagjöf sem borin var fram og taka nú ekki allt trúanlegt sem fram kæmi og ákváðum þá að sitja hjá, ef ég man rétt, við afgreiðslu málsins.
Maður veltir fyrir sér einmitt þessari samkeppni á raforkumarkaði. Þetta er náttúrlega sýndarsamkeppni. Raforkan verður seld í föstum samningum, 90% af henni eftir nokkur ár í stóriðju og eftir stendur 10% sem fer í samkeppni. Hverjir eru í samkeppni? Það eru opinber fyrirtæki sem er stjórnað meira og minna af fulltrúum þeirra flokka sem fara með landsstjórnina. Svo koma framsóknarmenn — þegar þeir láta sjá sig hér í þingsölum — og láta líta út fyrir að það séu einhver fyrirtæki sem boði hækkunina. En hverjir sitja í stjórn fyrirtækjanna? Það væri ágætt að hv. þm. Dagný Jónsdóttir upplýsti okkur um það. Eru það ekki einmitt fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem sitja í þeim stjórnum og eru að ráðgera hækkunina? Fyrst koma ráðherrar flokksins og búa til reglurnar, síðan koma þá stjórnarmenn flokksins.
Ég skora á fólk um land allt sem nú fær hækkaða raforkureikninga — ekki um nokkra hundraðkalla eins og gefið var í skyn í andsvörum hæstv. iðnaðarráðherra við ágætan hv. þm. Álfheiði Ingadóttur í umræðum á þingi, nei, ekki um þúsundkalla, heldur um tugþúsundir króna — að fylgjast með þeim, hvað hækkunin verður mikil og hvaða sendingu það fær inn um bréfalúguna frá Framsóknarflokknum. Vorið 2003 fékk fólk fallega bæklinga og lofað var ýmsum byggðaaðgerðum. Maður veltir því fyrir sér hvort þetta séu byggðaaðgerðirnar. Er þetta nútímavæðing Framsóknarflokksins að vera með hverja aðgerðina á fætur annarri til að höggva skörð í byggðir landsins?
Ég veit í raun ekki hvað flokknum gengur til með þessu, því að á landsbyggðinni hingað til hafa verið margir stuðningsmenn flokksins, að vera einmitt að veitast að fólkinu sem hefur sýnt flokknum stuðning. Ég vona nú að það fari að renna upp fyrir fólki ljós að þessi nútímavæðing flokksins er landsbyggðinni og byggð í landinu ekki góð. Fólk sér það náttúrlega þegar það fer að fá reikninginn inn um póstlúguna, tugþúsunda króna hækkun, frá Framsóknarflokknum og fólki á Stöðvarfirði er meinað að sækja sjóinn. Það er með ólíkindum að hv. þingmenn Framsóknarflokksins skuli ekki koma hér fram á völlinn og ræða til hvaða aðgerða á að grípa til að fólkið komist til vinnu á ný. Ég skora á hv. þm. Dagnýju Jónsdóttur að segja okkur að hún hlýtur að hafa hugsað fyrir því til hvaða aðgerða eigi að grípa fyrir fólkið á Stöðvarfirði, annarra en þeirra að senda því hækkaðan reikning. Það er með ólíkindum að ofan á allt annað lítur nú út fyrir að fólk verði svipt vinnunni 1. júlí og síðan fær það rafmagnsreikning í hausinn í ofanálag frá flokknum.
Ég minni á að þetta sama fólk hefur eflaust fengið fallega kosningabæklinga frá Framsóknarflokknum og því lofað byggð og bjartari atvinnu á Austurlandi. Fulltrúar flokksins, fjórir í Norðausturkjördæminu, ættu að sýna fólkinu þá virðingu að fara að ræða atvinnumál og kjör þessa fólks á Austurlandi sem er náttúrlega afleiðing þeirrar stefnu í atvinnumálum að svipta fólk í sjávarbyggðum atvinnuréttinum. Það er með ólíkindum.
Eins er það þessi svokallaða samkeppni opinberra fyrirtækja vel að merkja, þar sem opinberir forstjórar, sem eru náttúrlega undir stjórn flokksmanna m.a. hæstv. iðnaðarráðherra, sjá náttúrlega ekkert nema hækkun. Sumar þessara hækkana koma verulega illa við atvinnurekstur á landsbyggðinni, t.d. sumarhúsabyggðir. Við mig ræddi sveitarstjóri á Vestfjörðum um 250% hækkun á raforkuverði. Auðvitað er það með ólíkindum að flokkurinn skuli senda fólki þvílíka reikninga.
Ég ætla að láta máli mínu lokið að sinni en minni á að umræðu um raforkumál á hinu háa Alþingi er alls ekki lokið heldur verður henni haldið áfram. Sérstaklega munum við í Frjálslynda flokknum fylgjast vel með því að fyrirheit Framsóknarflokksins, að flokksmenn hans reyni nú að halda þau og að hækkunin á fólki úti á landi fari ekki úr böndum.