Fsp. 1.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og er út af fyrir sig ánægður með þau. Ég tek það svo að hæstv. ráðherra muni sem starfandi utanríkisráðherra fara yfir það hvar undirbúningur undir andmæli af Íslands hálfu er á vegi staddur. Það hefur komið fram í fjölmiðlum, í ágætri blaðagrein sem birtist í Morgunblaðinu í vikunni sem leið, að frestur til andmæla sé til 22. þessa mánaðar. Það er væntanlega hyggilegt að andmæla og það kröftuglega áður en sá frestur rennur út þó að auðvitað sé hægt að halda málinu áfram eftir að skráning hefur farið fram, þ.e. krefjast ógildingar. Albesta leiðin væri samt að mínu mati sú að ná samkomulagi við viðkomandi aðila um að falla frá skráningunni því að það er í sjálfu sér fullkomlega óeðlilegt að menn fari fram með slíka kröfu eða slíka ósk og langheppilegast væri að losna við frekari núninga, árekstra eða málaferli.
Ég vil a.m.k. að það komi skýrt fram af minni hálfu, og kosti það hvað kosta vill, að það á ekki að gefast upp baráttulaust fyrir því að nafn landsins verði meðhöndlað svona.