Fsp. 3.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):
Hæstv. forseti. Ég vil beina fyrirspurn til samgönguráðherra. Í fréttum fyrir örstuttu var sagt frá því að barist yrði fyrir því að gera hálendisveg til Akureyrar og stofna um það sérstakt félag. Ég vil spyrja hæstv. samgönguráðherra hvaða áhrif slíkur hálendisvegur mundi hafa á aðra vegagerð ef af yrði, m.a. á Norðurlandi, og jafnvel þá á hin fyrirhuguðu jarðgöng á Tröllaskaga, milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Hvaða áhrif mundi þetta hafa á flugsamgöngur og tíðni flugsamgangna til Akureyrar ef af yrði og hvernig sér hæstv. samgönguráðherra að þetta fari saman með þeim áherslum sem lagðar hafa verið upp í vegagerð? Hafa farið fram einhverjar veðurfarslegar rannsóknir, ekki bara um veðurhæð á hverjum tíma og veðurstyrkleika, heldur um ísingu og aðrar þær aðstæður sem geta myndast á háfjöllum Íslands?