131. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2005.

Fsp. 4.

[15:28]

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Svo að ég svari strax síðustu spurningu hv. þingmanns: Já, ég stefni að því að leggja þetta þingmál fyrir ríkisstjórn og síðan fyrir þingið á þessu vori. Að því stefni ég.

Varðandi ýmsar athugasemdir sem hv. þingmaður kom inn á áðan er ekki rétt að þessi breyting komi til með að gera skólakerfið einsleitara. Það er sérstaklega passað upp á að það svigrúm sem er nú þegar til staðar í kerfinu haldi sér og verði jafnvel meira, og aukin áhersla á það að skólarnir fái tækifæri til að móta sérstöðu sína.

Mig minnir að grunnskólarnir séu um 200 talsins. Ég hef þegar fundað með fræðslustjórum og hef ekki hugsað mér að fara í hvern einasta grunnskóla landsins. Ég hef hins vegar fundað með fræðslustjórum í Reykjavík og frá hinum ýmsu svæðum landsins þar sem ég kynnti þeim sérstaklega þessi styttingaráform. Það er auðvitað með ráðum gert til að allir séu mjög meðvitaðir um að hverju þessar breytingar lúta. Ég vil líka geta þess að Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefndi í þennan hóp sérstaklega með það að leiðarljósi að grunnskólinn er á forræði sveitarfélaganna og tilnefndi eins og ég gat um áðan Gerði G. Óskarsdóttur.