131. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[13:31]

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá Guðmundi Hallvarðssyni, 8. þm. Reykv. s., dagsett 7. febrúar 2005:

„Þar sem ég get ekki sökum læknismeðferðar sótt þingfundi næstu tvær vikur óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður, Lára Margrét Ragnarsdóttir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Lára Margrét Ragnarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.