131. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2005.

Athugasemd.

[13:38]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Það var með mikilli tilhlökkun sem ég tók sæti í hv. landbúnaðarnefnd síðasta vetur en því miður hefur orðið lítið um verkefni þar og enn minna um fundi. Ég verð að virða þær skýringar hæstv. landbúnaðarráðherra að hann sé enn að jafna sig eftir stórátak síðasta vors í lagasetningu. En fyrr má nú vera að það þurfi að liggja á meltunni í allt haust og jafnvel allan vetur. Það má þó ekki vera svo að eftir saltkjötsneysluna grípi spaðdoðinn hæstv. ráðherrann og hann megi ekkert gjöra.

Ég get bent hæstv. landbúnaðarráðherra á ágætisverkefni í svari til hv. þingkonu Önnu Kristínar Gunnarsdóttur sem liggur frammi um jafnréttisáætlun og skipan í stöður í landbúnaðarráðuneytinu. Kemur fram að frá árinu 1999 hafi verið skipað í 29 stöður í landbúnaðarráðuneytinu eða á vegum þess. Þar voru skipaðir 23 karlar og 4 konur og í nefndum á vegum ráðuneytisins sem eru hvorki fleiri né færri en 56 sitja 257 aðalmenn, þar af 40 konur. Ég hafði ekki fyrir að reikna hvað þetta er í prósentum, hæstv. forseti, en þetta er örugglega með öllu óviðunandi.