131. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2005.

Stjórn fiskveiða.

362. mál
[13:57]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Hér er verið að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Verið er að breyta núverandi lögum til samræmis við það sem hefur verið gert í lagabreytingum að mestu leyti.

Þó eru nokkur atriði sem við þurfum að ræða í þessu sambandi. Varðandi 1. gr. velti ég því fyrir mér hvort verið sé að setja niður stífari ákvæði um það en verið hafa að einungis sé hægt að gefa út eitt veiðileyfi í senn á hverju fiskveiðiári og spyr hæstv. ráðherra hvort verið sé að gera breytingu á því, því t.d. hafa minni fiskiskip fengið tvenns konar veiðileyfi eins og grásleppuveiðileyfi, jafnvel hygg ég að einstöku sinnum hafi verið gefið út sérveiðileyfi til rauðmagaveiða.

Ég tel rétt að fá skýr svör við því frá hæstv. ráðherra hvort verið sé að taka upp einhverja breytingu frá því sem viðgengist hefur að jafnvel þó að skip hafi eitt veiðileyfi hafa í reynd verið gefin út annars konar veiðileyfi. Ég vona að sú breyting sem hér er verið að tala um þýði það ekki.

Ég velti líka fyrir mér, hæstv. forseti, hvar í lögunum verður eftir heimild fyrir þá báta sem ekki stunda veiðar samkvæmt þessum veiðileyfum, þ.e. aflamarki og krókaaflamarki, þ.e. stunda enn þá veiðar með dagatakmörkunum, a.m.k. út næsta fiskveiðiár. Ef ég þekki rétt þá á það við einhverja báta. Ég hef ekki á takteinum hve margir þeir eru en hæstv. ráðherra veit það ábyggilega og getur upplýst okkur um það. Einhvers staðar þarf að vera lagaheimild fyrir þeim veiðum ef það er hugmynd ráðuneytisins og hæstv. ráðherra að slíkum leyfum skuli fundinn staður með reglugerðarútgáfu eða túlkun á reglugerð. Það er svo að allar heimildir þurfa að hafa lagastoð.

Í samræmi við þetta er niðurfelling í 5. gr. laganna þar sem segir: „Lokamálsgrein 5. gr. fellur brott.“ Þar er fellt niður ákvæði sem segir fyrir um veiðar með handfærum með dagatakmörkunum. Það tengist því sem segir í 1. gr.

Ég spyr einnig hvort ekki þurfi að áætla afla þeirra báta sem stunda enn þá veiðar með dagatakmörkunum. En mér sýnist því vera breytt með því sem gert er í 4. gr.

Mig langar síðan, hæstv. forseti, að víkja sérstaklega að 6. gr. frumvarpsins. Þar eru fest í sessi ákvæði um að landa megi afla utan aflamarks, annars vegar 0,5% af svokölluðum uppsjávarafla og hins vegar 5% af öðrum sjávarafla. Þau ákvæði hafa verið til bráðabirgða. Í framhjáhlaupi má nefna það að bráðabirgðaákvæði laga um stjórn fiskveiða eru reyndar fleiri heldur en lagagreinarnar sjálfar. Ég held að lagagreinarnar séu um 27 en bráðabirgðaákvæðin 35 þannig að það er auðvitað margt sem kallar á að það sé lagað til í þessu lagasafni miðað við framkvæmdina. Með sama hætti fellur niður bráðabirgðaákvæðið XXIX um þennan afla utan aflamarks.

Nú er það svo að við höfum nýlega fengið opinberar upplýsingar um að afli utan aflamarks í veiðum flottrollsskipa hafi verið talsvert meiri en árið á undan. Það var meira að segja sérstaklega tekið fram, ef ég man rétt, að þorskafli hefði farið í 1.400–1.500 tonn í veiðum þeirra skipa sem stunda uppsjávarveiðar með flotvörpu. Það er varla hægt að ætlast til að menn séu mjög sáttir við að lögin séu túlkuð með sitt hvorum hætti í landinu og ekki séu allir jafnir fyrir lögum. Í reynd hefur það verið þannig á undanförnum árum að meðafli í uppsjávarveiðum hefur ekki verið talinn til aflamarks. Ég spyr hæstv. ráðherra um hvað hann hyggst fyrir í þeim efnum. Varla getur það verið þannig að veiðileyfi séu tekin af mönnum fyrir 50–100 kg umframafla þegar ákveðinn hluti flotans er með mun meiri umframafla og virðist ekki þurfa að standa skil á honum. Um þetta vil ég spyrja ráðherrann og hvort tillagna sé að vænta í þessum efnum frá ráðuneytinu.

Varðandi þau 5% sem almennt hefur verið miðað við varðandi botnfisksafla sem heimilt er að landa utan aflamarks, með sérstakri tilkynningu skipstjóra gegn því að aflinn sé seldur á fiskmörkuðum, vil ég spyrja hvort leitast hafi verið við að tryggja að afli sem komið hefur í veiðarfæri flottrollsskipa væri með sama hætti seldur á uppboðsmörkuðum. Vissulega er hætt við því að eitthvað af slíkum afla skemmist í flottrollinu en ég hugsa að einnig sé hægt að ná þeim afla óskemmdum frá afla flottrollsveiðiskipanna. Alla vega hafa myndir af afla þessara skipa sýnt að nokkuð stór fiskur af ýmsum tegundum, ufsi, karfi og þorskur, hefur verið óskemmdur innan um uppsjávaraflann. Þessi atriði verða menn að ræða. Þetta er vandamálið við uppsjávarveiðarnar og menn verða að takast á við að reyna að leysa það, hvort sem það verður gert með skiljum í veiðarfærunum eða þá skiljum um borð í skipunum þannig að aflinn náist frá uppsjávaraflanum og sé þá annaðhvort seldur sem slíkur á uppboðsmarkaði eða reynt að nýta hann til einhverrar framleiðslu, þ.e. ef hann er nýtanlegur sem ég ætla ekki að fullyrða um.

Ég hef bent á það áður að mér finnst vert að athuga hvort ekki sé tímabært að færa til hámarkið varðandi meðafla í botnfisksafla, hækka það um einhver prósent. Ég nefni t.d. töluna 7% og spyr ráðherrann hvort þessi heimild fyrir 5% meðafla sé almennt eða í einhverjum tilfellum nýtt í botn. Þurfa sum skip á því að halda að nýta þá heimild að fullu, að tilkynna afla utan aflamarks? Þetta ákvæði var á sínum tíma sett inn til að reyna að hafa áhrif á og draga úr brottkasti og ekkert nema gott um það að segja. En ég sé ekki hvers vegna við eigum að takmarka okkur við þessi 5% ef hægt er að færa rök að því að hlutfallið eigi jafnvel að vera eitthvað hærra. Ég geri mér grein fyrir því að sú tala má ekki fara upp úr öllu valdi og að hafa þarf aðhald. En það er sjálfsagt að reyna að tryggja að sem mest af meðafla skipanna komi að landi. Þar er um mikil verðmæti að ræða. Eins og ráðherrann veit sjálfur hafa miklir peningar safnast í sjóði í sjávarútveginum með þeirri heimild. Ráðuneytið hefur síðan þá sjóði, m.a. í þau verkefni sem menn hafa áhuga á að reyna að styrkja á hverjum tíma.

Ég held að það mundi ekki skaða að sjávarútvegsnefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar skoði það vandlega. Það mætti láta vinna upplýsingar fyrir nefndina þar sem kæmi fram hvernig heimildin hefur verið nýtt, hve mörg skip hafa fullnýtt heimildina miðað við aflaheimildir sínar, hvernig hún hefur nýst eftir veiðarfærum eða tímabilum o.s.frv. Ég held að það væri ákaflega fróðlegt að brjóta þetta upp og skoða til að átta sig á því hvað megi betur fara að þessu leyti.

Hér er einnig fellt út ákvæðið um að ef skip farist geti aflaheimild verið óskert hjá viðkomandi útgerð í 12 mánuði eða lengur. Mig minnir að á sínum tíma hafi þetta verið sett inn vegna þess að skip geta auðvitað farist hvenær árs. Síðan kemur upp nýtt fiskveiðiár og ef skip er ekki til á skrá er erfitt að úthluta því aflaheimild. Þess vegna var þetta ákvæði sett inn á sínum tíma, ef ég man rétt, þótt ég vilji ekki fullyrða að það sé rétt. En þetta voru ábyggilega rökin fyrir því. Menn sáu fram á að ef skip færist og annað væri ekki komið inn eða búið að ganga frá kaupum á nýju skipi þá væri mönnum gefinn lengri frestur til að mæta því ástandi. Ég hefði gaman af að heyra hæstv. ráðherra fjalla um þetta í nokkrum orðum. Að vísu má segja að búið sé að gefa allan tilflutning á aflaheimildum frjálsari en áður var og auðveldara sé að færa aflaheimildir á milli skipa. Ég tel það reyndar mjög vafasamt hvernig að því var staðið upp úr 1990 en ætla ekki að halda langa ræðu um þann ágreining af þessu tilefni. Sá ágreiningur er ágætlega þekktur. Ég tel hins vegar að það ákvæði geri það að verkum að byggðir landsins geta aldrei verið öruggar um tilveru sína frá degi til dags. Menn hafa ekki hugmynd um það hvenær aflaheimildir haldast í byggð og hvenær ekki.

Nefna mætti nokkur dæmi um tilflutning á aflaheimildum. Nærtækt dæmi er t.d. Stöðvarfjörður sem hefur verið í umræðunni en fyrirhugað er að aflaheimildir sem voru þar á fiskiskipinu Kambaröst, sem hefur verið stór hluti í undirstöðuatvinnurekstri þess byggðarlags, færist þaðan. Við gætum nefnt fjöldamörg önnur dæmi. Í nýlegri skýrslu sem kynnt var vestur á Ísafirði kemur m.a. fram að Vestfirðingar hafi tapað 39% af störfum í sjávarútvegi, m.a. vegna minni aflaheimilda. Auðvitað gerist það með frjálsu framsali og tilfærslu.

Ég vil láta það koma fram, úr því að ég er farinn að vekja máls á þessu, að ég tel að útfærsla byggðastefnunnar sé nánast tilgangslaus fyrir sjávarútvegsbyggðirnar þegar slík ákvæði eru inni í lögum um stjórn fiskveiða að aflaheimildir geti flakkað óhindrað fram og til baka, ekki sé með neinum hætti litið á atvinnuréttindi fólksins heldur eingöngu eignarrétt útgerðarinnar.

Í Morgunblaðinu í morgun rak ég augun í grein um að nauðsynlegt væri að eignarhald á veiðiheimildum, á óveiddum fiski í sjó, yrði fært varanlega á þá sem aflaheimildirnar hafa, að þar verði um algeran eignarrétt að ræða og menn þurfi ekki að velkjast í vafa um að útgerðarmaðurinn hafi atvinnuréttinn með aflaheimildum og geti farið með hann hvert sem er, hvenær sem er, til hvaða byggðar eða frá hvaða byggð sem er. Ég vildi vekja athygli á þessu við þessa umræðu þótt ég ætli ekki að gera umræðuna að sérlega löngu máli við þá lagahreinsun sem hér er. Hún hefur samt ákveðin áhrif. Það er auðvitað ekki hægt að láta málið ganga fram nema það sé tekið til efnislegrar umræðu.

Síðan er lagt til að hinn svokallaði eldiskvóti, 500 tonn af óslægðum þorski, verði varanlegur og færður inn í lögin. Ég held að það sé til bóta eins og staðan er og fram til fiskveiðiársins 2009–2010 hafi menn þann eldiskvóta. Vonandi verður það til að efla þorskeldi og sýna hvort við getum náð verulegum árangri í því til framtíðar og byggt upp atvinnugrein í eldi á þorski. Ég held að það sé mjög áhugavert að ýta undir þá þróun.

Í 11. gr. er verið að fella niður bráðabirgðaákvæði eins og ég sagði áður. Ég vík aftur að því að ég tel að menn eigi að velta því fyrir sér hvort hækka eigi þessa prósentu úr 5% upp í 7%. Ég tel einnig að sjávarútvegsnefnd verði að velta mjög gaumgæfilega fyrir sér hvernig fara eigi með meðafla í uppsjávarveiðum. Það gengur auðvitað ekki að framkvæmdin þar sé allt önnur en við aðrar veiðar. Ég geri mér vel grein fyrir því að þar verður aldrei hægt að forðast meðafla að öllu leyti nema þá að takist að hafa sérstaka sortunargrind í flotvörpunum. Ég er hins vegar alls ekki viss um að það gangi upp við flotvörpuveiðar á kolmunna, síld og loðnu.

Það er síðan önnur umræða hvort stunda á þessar veiðar á öllum þeim þremur uppsjávartegundum sem ég nefndi með flottrolli. Við vitum að árangur við kolmunnaveiðar verður ekki mikill án þess að nota flottrollið. Vissulega hafa flottrollsveiðar á síld í mörgum tilfellum aukið verðmætasköpun í síldveiðum og aukið manneldisnýtingu á síldinni, sem ég tel æskilegt markmið við allar veiðar og jafnframt loðnuveiðarnar. Það er svo sér fiskifræðileg umræða hversu mikið við eigum að veiða af loðnu til bræðslu, sem ég er farinn að efast mjög um að þjóni þeim hagsmunum okkar að byggja upp þorskstofninn.

Þetta er það helsta sem ég vildi nefna í upphafi umræðunnar. Það er samt sem áður hægt að víkja að efni sem ég tel fulla ástæðu til að ræða og það er stofn auðlindagjaldsins. Við erum jú að fjalla um þetta lagasafn í heild sinni og það fer ekkert á milli mála að reikningurinn fyrir því hvernig á að leggja auðlindagjald á hér á landi er náttúrlega nákvæmlega eins og til hans var stofnað. Við, nokkrir þingmenn, bentum á það við umræður um upptöku á auðlindagjaldinu hvað mundi gerast ef einn útgerðarþáttur væri í ákaflega bágum afkomurekstri og hvað mundi þá gerast varðandi þann rekstur. Þetta dæmi er nákvæmlega komið upp núna í rækjunni og reyndar kannski í fleiri greinum eins og skelfiski.

Það er þannig að við finnum út meðaltalsafkomu í ákveðnum greinum útgerðarinnar og leggjum auðlindagjaldið á samkvæmt því. Það er eiginlega algjörlega vonlaust — ég vona að hæstv. sjávarútvegsráðherra sé búinn að átta sig á því, enda brást hann sjálfur við alveg sérstaklega og afnam, ja afnam ekki, hann lækkaði kvótasetningu á Flæmingjagrunni það mikið að líklegt var að menn veiddu þann afla vegna þess að ella væru menn að borga auðlindagjald af einhverri úthlutun sem væri ekki til staðar eða gæfi ekki nein verðmæti.

Þetta held ég að öllum hljóti að vera orðið ljóst, að útfærsla á auðlindagjaldinu með þeim hætti að finna út meðaltalsafkomu gengur ekki ef menn ætla ekki beinlínis að stuðla að því með framkvæmd laganna að ákveðinn hluti útgerðarinnar lendi í meiri erfiðleikum en ella.

Ég vil spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra í lok ræðu minnar hvað hann hyggist fyrir varðandi auðlindagjaldið eins og það er í pottinn búið í dag, hvort þar þurfi ekki að taka til hendinni.