131. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2005.

Stjórn fiskveiða.

362. mál
[17:30]

sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég bíð bara spenntur eftir því að komast í tölvuna og skoða sigurjon.is, skoða línuritið þar, sérstaklega með tilliti til þess hvaða álit hv. þingmaður hefur á stærðfræði og tölfræði. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig línuritin hjá honum líta út.