131. löggjafarþing — 69. fundur,  9. feb. 2005.

Orkuvinnsla til vetnisframleiðslu.

125. mál
[13:14]

Fyrirspyrjandi (Rannveig Guðmundsdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að svar ráðherrans kemur mér ekkert mjög mikið á óvart. Ágætur þýskur þingmaður sem kom hingað í fyrra og fór í gegnum allan pakkann í skoðun á því sem er að gerast á Íslandi, einn af þeim sem höfðu fengið fréttirnar til Evrópusambandsins um allt sem væri að gerast hér í vetnismálum, hafði á orði að ofboðslega væri hann hissa á því að engar áætlanir væru neins staðar um hvað ætti að gera og hvað ætti að virkja. Ég var ekkert hissa vegna þess að þegar maður fer að kafa ofan í vetnismálið eins og það liggur fyrir, og það gerði ég fyrir tveimur árum þegar ég var að vinna að þingsályktun sem síðan kom fram frá öðrum nokkrum dögum áður en mín hefði verið lögð fram, sér maður að allt eru þetta áhugaverðar hugmyndir, góður vilji og svo ekkert meira.

Í mörgum borgum Evrópu er verið að keyra strætisvagna á vetni. Vandinn er sá að það tekur mikið rými að vera með vetni á bílunum, það þarf svo stóran geymi. Þess vegna eru aðrar hugmyndir líka uppi, t.d. um hvort hægt væri að framleiða metanól. Það hefur verið skoðað hjá háskólanum hér að nýta afgas frá stóriðju. Það væri mjög áhugavert verkefni fyrir okkur Íslendinga með stóriðjustefnuna að skoða og tengja inn í samninga. Það skilst mér að hafi heldur ekki verið gert. Það er alveg ljóst að við getum þurft að nota allt upp í 10 gígavattstundir ef það á að nýta vetnið til blöndunar með öðru á venjulegar bifreiðar. Talað hefur verið um að það þyrfti eins og a.m.k. eitt stykki Kárahnjúkavirkjun til að framleiða vetni á bíla og báta.

Ég verð að segja að svarið kom mér ekki á óvart. Ég er vonsvikin.