131. löggjafarþing — 69. fundur,  9. feb. 2005.

Orkuvinnsla til vetnisframleiðslu.

125. mál
[13:17]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég veit ekki til hvers hv. þingmaður hefur ætlast. (RG: Það er akkúrat málið.) Það sem við erum að gera, Íslendingar, er í samstarfi við aðrar þjóðir. Við gerum okkur mjög vel grein fyrir því að við björgum ekki heiminum ein og það þarf mikla tækniþekkingu og miklar tækniframfarir til að þetta verði að veruleika. Þess vegna störfum við með öðrum þjóðum, bæði í alþjóðlegu verkefni, EPRD-verkefninu, þar sem við vorum ein af stofnþjóðum um 15 þjóða sem stofnuðu til þess alþjóðlega samstarfs, og erum meira að segja með forustu í einni nefnd þar. Ég bara fullyrði að við stöndum okkur eins og hægt er að ætlast til af okkar þjóð miðað við smæðina.

Það sem við höfum líka lagt mikla áherslu á er að bjóða Ísland fram sem tilraunasamfélag á þessu sviði. Auðvitað er þetta ECTOS-verkefni sem er hér í gangi í Reykjavíkurborg dæmi um það að Ísland sé notað eins og tilraunaverkefni eða tilraunaland á þessu sviði.

Hv. þingmaður var að tala um að tengja þetta við virkjanir og lét að því liggja, að mér heyrðist, (RG: … búin með allt.) að við hefðum ekki svigrúm fyrir vetnið ef það virkilega yrði orkuberi framtíðarinnar. Í því felst mikill misskilningur. Eins og kom hérna fram hjá mér áðan þyrfti allur bílaflotinn okkar ekki meira en eins og tvær 100 megavatta jarðgufuvirkjanir. Það eru smámunir miðað við þá virkjanamöguleika sem við búum yfir, Íslendingar. Þar að auki verða samningar um stóriðju runnir út í verulegum mæli þegar þar að kemur.

Hv. þingmaður er nú eitthvað að fiska hér í gruggugu vatni, finnst mér, því að ég held að alveg megi segja að við stöndum okkur ágætlega þótt við gerum okkur líka grein fyrir að við björgum ekki ein heiminum. Þess vegna erum við líka í alþjóðlegu samstarfi um þetta mál.