Verðmæti og ráðstöfun losunarheimilda.
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að halda því til haga að við fáum þetta sérákvæði, Íslendingar, inn í Kyoto-samninginn vegna þess að við erum að framleiða eingöngu hreina orku. Það skiptir gríðarlega miklu máli þegar við horfum til umheimsins alls. Það er þetta sem alþjóðasamfélagið hefur viðurkennt og samþykkt og ég vona að ekki séu neinir Íslendingar á hv. Alþingi sem eru ekki sammála um að þetta sé mikilvægt þegar horft er til heimsins alls. Það er líklega 7–8 sinnum meiri koltvísýringsmengun samfara því að framleiða ál með t.d. kolum en með hreinni (Gripið fram í.) orku eins og við Íslendingar gerum.
Það er nú fátt sjálfsagt í þessum heimi. Hv. þingmaður spyr hvort mér finnist sjálfsagt að stóriðjan fái endurgjaldslaust þessa kvóta. Ég tel það eitthvað sem sé sjálfsagt að ræða en eins og þetta lítur út núna og á þessu losunartímabili sem við erum að ræða um er ekki verið að tala um sérstakar greiðslur.
Eins og kom fram í svari mínu áðan höfum við ekki tekið ákvörðun um það hvernig þeim kvóta verður úthlutað sem við eigum enn þá miðað við þessi 1.600 þús. tonn. Við verðum bara að sjá til hvernig mál þróast. Það er ekki þar með sagt að það verði úr frekari uppbyggingu á álverum á Íslandi, það hefur ekki verið gengið frá neinu um það þótt við vitum um áhuga margra álbræðslufyrirtækja í heiminum, þeirra stærstu má segja. Það kemur náttúrlega til af því að Ísland náði þessu sérákvæði inn í samkomulagið um Kyoto.