Tæknigreinar og verkfræði.
Björgvin G. Sigurðsson (Sf):
Virðulegi forseti. Ég deili því markmiði með hæstv. ráðherra og hv. fyrirspyrjanda að við þurfum að efla tækni- og verkfræðina og verknámið að sjálfsögðu líka. En það sem helst gæti orðið því til trafala er skortur á raungreinamenntuðum kennurum. Því til marks má nefna að af þeim 951 sem nú stunda nám á grunnskólabraut í Kennaraháskóla Íslands eru einungis 58 með stærðfræði sem aðalkjörsvið. Það segir töluverða sögu um hve fáir kennaranemar eru núna að stunda stærðfræðina. Ég held að það verði að taka inn í þessa umræðu um bæði framtíð kennaramenntunar og framtíð iðn-, tækni- og verkfræðimenntunar að leggja ríka áherslu á að fjölga þeim kennurum og þeim nemendum taki stærðfræðina sem aðalkjörsvið í Kennaraháskólanum. Ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. ráðherra að það sé brýnt verkefni og undirstaðan undir það að þetta takist.