Lýsing vegarins um Hellisheiði.
Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):
Virðulegi forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. samgönguráðherra um lýsingu og breikkun vegarins um Hellisheiði.
1. Eru uppi fyrirætlanir um lýsingu og breikkun vegarins um Hellisheiði?
2. Hefur ráðuneytið kynnt sér tilboð Orkuveitu Reykjavíkur um lánveitingu til að lýsa veginn og leggja snjóbræðslukerfi í hluta hans?
3. Kemur til greina að mati ráðherra að fara í samstarf við Orkuveitu Reykjavíkur um þessar framkvæmdir?
Á undanförnum árum hefur orðið feikileg uppbygging á Suðurlandsundirlendinu öllu, sérstaklega því svæði sem telst til Árborgar, Flóa, Ölfuss og Hveragerðis þar sem íbúafjölgun hefur verið mjög mikil. Þar er einna mest íbúafjölgun á landinu og svæðið er allt í mikilli uppsveiflu. Þessu fylgir náttúrlega mikill umferðarþungi og auk þess er þetta fjölfarin leið ferðamanna og sumarbústaðaeigenda af höfuðborgarsvæðinu, um Grímsnes, Hreppa og allt það svæði. Umferð hefur því aukist mjög um Hellisheiði og Suðurlandsveg.
Til að nefna dæmi hefur aukning á meðalumferð á dag um Hellisheiði á síðustu 12 árum verið um 70%. Árið 1992 var meðalumferðin á dag, heilsárstala með öllum toppum sínum og lægðum, rúmlega 3.200 bílar. Árið 2004 er tala þeirra bíla sem fara yfir Hellisheiði hins vegar orðin 5.638. Aukningin er 70% á þessu 12 ára tímabili. Bara í fyrra, á milli áranna 2003 og 2004, varð aukningin á þessari leið 8%, og tæp 12% á leiðinni milli Hveragerðis og Selfoss, undir Ingólfsfjall. Þetta helst í hendur við þá íbúasprengingu sem orðið hefur á Suðurlandsundirlendinu.
Það má fullyrða að verði þeirri þróun ekki fylgt eftir með róttækum samgöngubótum á borð við breikkun Suðurlandsvegar og lýsingu vegarins, a.m.k. að hluta á Hellisheiði, muni það þvælast mjög fyrir þeirri þróun, hægja á henni og gera búsetuskilyrðin á svæðinu verri.
Í Reykjanesbæ vorum við á dögunum að fagna því að hæstv. samgönguráðherra hygðist bjóða út alla þá framkvæmd sem eftir er við breikkun Reykjanesbrautar. Það er lofsverð og góð framkvæmd og mikið fagnaðarefni fyrir landsmenn alla að sú breikkun sé í augsýn. Á sama tíma sjáum við umferðartölur, sambærilegar eða hærri, um Suðurlandsveg sem er svo sannarlega þjóðbraut. Það er mikilvægt að tryggja umferðaröryggi allt árið um kring og því er mjög mikilvægt að ráðast í það verkefni. Það þarf að setja inn á samgönguáætlun, breikkun vegarins frá Rauðavatni að Selfossi og lýsingu hans að hluta.