Athugasemd.
Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins vegna skriflegs svars hæstv. heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um utanferðir lækna og kostnað lyfjafyrirtækja sem dreift var hér á Alþingi fyrir helgi. Þar kemur fram að allt að 500 læknaferðir hafi verið farnar á kostnað lyfjafyrirtækja á síðasta ári, þ.e. á vegum hagsmunaaðila í heilbrigðiskerfinu. Læknafélagið og forusta lækna hefur í kjölfarið viðurkennt að á þessu ástandi þurfi að ráða bót og að fara þurfi yfir siðareglur lækna, og sömuleiðis yfir samskipti lyfjafyrirtækja og lækna sem er mjög jákvætt.
Í svari hæstv. ráðherra kemur einnig fram að flestar heilbrigðisstofnanir sem leitað var til um svör við fyrirspurnunum höfðu ekki áreiðanlegar upplýsingar um ferðir lækna sem hjá þeim starfa, þ.e. ferðir sem farnar voru á kostnað annarra en stofnananna sjálfra. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Mun hann beita sér á einhvern hátt, t.d. með því að leggja til að settar verði reglur, fyrir því að heilbrigðisstofnanir hendi reiður á því hvaða læknar ferðast á kostnað hagsmunaaðila og haldi sem sagt yfir það einhverja skrá þannig að þeir viti og hafi uppi á borðinu allar slíkar ferðir? Ég minni á að læknar taka ákvarðanir um lyfjakaup og lyfjaávísanir og þó svo að flestum læknum megi treysta þurfa svona hlutir að vera uppi á borðinu.
Stofnanir eins og t.d. sjúkrahús erlendis eru með eftirlit og strangar reglur um markaðssetningu lyfjafyrirtækja gagnvart læknum á stofnunum. Ég spyr hæstv. ráðherra: Þurfum við ekki að gera slíkt hið sama? Mun hæstv. ráðherra beita sér í þessum efnum hvað varðar opinberar stofnanir eins og sjúkrahúsin, heilsugæsluna, Landspítalann o.s.frv.?