.
Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég fagna því að hann ætli að taka á þessum málum.
Vegna umræðunnar langar mig að geta þess hér að mér finnst ekki hafa komið nógu skýrt fram að fáar stéttir eru með ríkari endurmenntunarákvæði í samningum sínum en læknar. Þeir hafa tök á því að fara á hverju ári í 15 daga á kostnað vinnuveitenda sinna í endurmenntunarferðir. Ég tel það fullkomlega eðlilegt og nauðsynlegt. Engu að síður þurfa reglur að vera skýrar og það má ekki verða þannig að lyfjafyrirtækin stjórni því hvaða fræðsla fer fram og hvaða rannsóknir. Það er altalað að lyfjafyrirtækin setji meira fé í markaðssetningu en í rannsóknir á lyfjum.
Mig langar að nefna hérna dæmi um hvernig þessu er háttað. Gæðastjórnunarverkefni í heimilislækningum sem varðar mjög alvarlegt heilbrigðisvandamál, vaxandi sýklalyfjaónæmi hjá börnum, hefur verið í gangi vegna þess að það er óþarflega mikið um sýklalyfjaávísanir á börn vegna t.d. eyrnabólgu. Lyfjafyrirtækjunum hefur ekki þótt ástæða til að styrkja þetta verkefni. Það hefur frekar verið í óþökk þeirra vegna þess að það snýst um að draga úr lyfjanotkun, minnka sýklalyf til barna. Þar sem best hefur gengið í þessu verkefni hefur það leitt til mun minni lyfjanotkunar, það hefur dregið úr notkun allt að tveimur þriðju. Þarna þarf auðvitað að taka á hlutunum. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann telji ástæðu til þess að þessir peningar frá lyfjafyrirtækjunum fari í sjóð og síðan geti læknar og þeir sem sinna svona rannsóknum sótt um styrki í þennan sjóð.
Ég vil líka nefna að það er mjög mikilvægt (Forseti hringir.) að lyfjafyrirtækin geti kynnt mál sín en svona reglur þurfa allar að vera uppi á borðinu.