131. löggjafarþing — 72. fundur,  10. feb. 2005.

Athugasemd.

[13:38]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Þeir eiga það sameiginlegt, hæstv. forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson, Tony Blair og Bush, að þeir vilja lítið tala um liðna tíð þegar Íraksmálið á í hlut.

Ég verð að játa það, forseti, að mér var ákaflega brugðið þegar ég las yfir viðtalið við hæstv. forsætisráðherra í fréttum Stöðvar 2 í gær. Vinnubrögðin sem þar er lýst eru svo ævintýralega ófagleg, svo niðurlægjandi fyrir íslenska þjóð að ég held að það sé leitun að öðru eins. Sú stóra og skelfilega ákvörðun að gera Ísland samábyrgt, að hlutdeildaraðila í ólögmætu árásarstríði í Írak 2003 — ja, hvernig var þessi ákvörðun tekin?

Hún var tekin á hlaupum. Það voru skilaboð frammi á gangi í Stjórnarráðinu gegnum embættismann til bandaríska sendiherrans sem hafði drepið þar niður fæti. Aftur og aftur segir hæstv. forsætisráðherra, fyrrverandi utanríkisráðherra, í þessu viðtali: Ég man nú ekki þetta, ég man nú ekki hitt. Allt er þetta nú samkvæmt minni, segir hæstv. forsætisráðherra og staðfestir að ekki er stafkrókur bókaður um þetta mál í Stjórnarráði Íslands. Engin skrifleg gögn eru til, það var aldrei tekin nein formleg ákvörðun á fundi, engin yfirlýsing send íslensku þjóðinni, engin tilkynning.

Svona gerðist þetta. Það var pukrast með málið að ósk bandarísku ríkisstjórnarinnar og nafn Íslands birtist svo á þessum lista þegar Bandaríkjamönnum hentaði. Bandaríkjamönnum voru gefin frjáls afnot af nafni Íslands til að nota þegar þeim sýndist og eins og þeim sýndist, ólögmætum stríðsaðgerðum sínum til stuðnings og réttlætingar. Loks er viðurkennt, óbeint, að menn voru að borga á sig vegna væntanlegra samningaviðræðna um herinn, (Forseti hringir.) um fjórar gamlar herþotur. Þvílík niðurlæging fyrir utanríkismál einnar sjálfstæðrar þjóðar.